Meryl Streep er án nokkurs vafa meðal bestu leikara heims. Hún hefur hlotið fleiri tilnefningar til Óskarsverðlauna en nokkur annar eða alls nítján. Hún hefur hlotið Óskarinn þrisvar, fengið níu Gullna hnetti og verið tilnefnd til þeirra verðlauna tuttugu og níu sinnum. Að auki hefur hún iðulega verið tilnefnd og hlotið BAFTA-verðlaun, Tony-verðlaun fyrir sviðsleik og verðlaun Actors Guild í Bandaríkjunum. Óskarstytturnar fékk hún fyrir Kramer vs. Kramer, Sophie’s Choice og Iron Lady. Þessi einstaka leikkona stóð á krossgötum í lífi sínu árið 2018 þegar hún og eiginmaður hennar, til þrjátíu og níu ára, Don Gummer skildu. Þrálátur orðrómur er nú um að hún og Martin Short eigi í ástarsambandi en hvorugt hefur viljað staðfesta það.
Þegar Meryl og Don skildu ákváðu þau að halda skilnaði sínum leyndum til að byrja með. Ástæðurnar voru fyrst og fremst þær að þau vildu fá frið til að jafna sig. Hjónaband þeirra hafði löngum verið talið eitt það traustasta í Hollywood og þau vissu að fjölmiðlafárið yrði mikið. Það var því ekki fyrr en árið 2023 að þau sögðu frá skilnaðnum. Fljótlega eftir það fór Meryl að sjást opinberlega í fylgd Martin Short en þau eru gamlir og góðir vinir. Bæði hafa neitað að sambandið sé á rómantískum nótum en fjölmiðlar fullyrða engu að síðar að svo sé. Martin missti konu sína, Nancy Dolman, úr krabbameini árið 2020 en þau höfðu verið gift í þrjátíu ár. Hann og Meryl þekkja því bæði vel að hafa verið í löngum og farsælum samböndum.
En hvort sem þau eru ástfangin eða góðir vinir hlýtur að vera fagnaðarefni að tvær góðar manneskjur eigi í djúpu og góðu sambandi hvort við annað. Meryl er 76 ára en Martin 75. Þau sjást orðið oft saman úti að borða og fylgjast að í leikhús, á verðlaunaathafnir og fleira. Sagt er að sambandið hafi byrjað að þróast út í ástarsamband þegar Meryl fékk hlutverk í þáttaröðinni Only Murders in the Building. Sagt er að hún hafi heillast af jákvæðni Martins og lífsgleði. Hvorugt þeirra var í leit að nýjum maka og Meryl hafði sagt að hún ætlaði að einbeita sér að fjölskyldu sinni og því að eldast með reisn. Það ætlaði hún að gera með því að halda áfram að rækta ástríðu sína fyrir leiklistinni, ástunda heilbrigt líferni og þakklæti. Hún sagði einnig í viðtali að hún kynni alltaf betur og betur að meta kyrrlátt og rólegt líf.

Mamie, Grace og Louisa hafa allar fetað í fótspor móður sinnar.
Meryl á fjögur börn með Don sem hafa öll fetað í fótspor hennar nema sonur þeirra Henry Wolf Gummer sem er söngvari og lagahöfundur. Dæturnar þrjár, Louisa, Mamie og Grace hafa hins vegar verið að vekja athygli síðustu árin fyrir frábæran leik. Louisa í The Gilded Age, Mamie í The Good Wife og Grace í Love Story.
Að gamni eru svo hér nefndar nokkrar þær kvikmyndir sem Meryl Streep hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir en ekki fengið styttuna.
Kona franska lautinantsins
Myndin er gerð eftir skáldsögu John Fowles, framúrstefnulegu verki sem helst vakti athygli fyrir það að bjóða lesendum upp á þrjá mismunandi endalok sögunnar. Höfundur lék sér einnig að því að leyfa lesandanum aldrei að lifa sig fyllilega inn í söguna. Í myndinni var þetta leyst með því að leyfa áhorfendum bæði að fylgjast með sögu elskendanna Söru og Charles og leikaranna sem leika þau. Myndin er einstaklega vel unnin og hefur elst vel.
Silkwood
Saga verkakonunnar Karen Silkwood er án efa einn af svörtu blettunum í amerískri sögu. Karen vann í kjarnorkuveri og tók að berjast fyrir auknum réttindum sjálfrar sín og samstarfskvennanna. Þær unnu með geislavirkt plútóníum daglega og Karen hafði áhyggjur af öryggis væri ekki nægilega vel gætt við vinnu þeirra og heilsa þeirra væri í hættu Þegar hún deyr í bílslysi kvikna grunsemdir um að ekki hafi allt verið með felldu varðandi það hvernig slysið bar að. Félagar Karenar héldu baráttunni áfram og lögfræðingi hennar tókst að fá dæmdar hæstu skaðabætur sem veittar höfðu verið einstaklingi til barna hennar.
Póstkort af brúninni
Postcards from the Edge var frumsýnd árið 1990 og vakti mikla athygli. Hún byggði á sjálfsævisögulegri skáldsögu Carrie Fisher, dóttur Debbie Reynolds og Eddie Fisher. Carrie skrifaði handritið sjálf. Þetta er áhugaverð saga um samband móður og dóttur sem báðar hafa brennt sig illa á harðneskjunni í Hollywood. Meryl leikur Suzanne Vale, leikkonu sem reynir að ná tökum á eiturlyfjafíkn sinni og komast aftur í vinnu í kvikmyndaborginni. Shirley Mclane átti einnig stórleik sem hin sjálfselska móðir hennar.
Júlíurnar tvær
Julie & Julia er einstaklega ljúf og skemmtilega mynd frá árinu 2009. Amy Adams leikur Julie Powell sem ákveður að reyna að ná fullum tökum á franskri matargerð. Hún ákveður að elda allar uppskriftir í bók Juliu Childs, frægs sjónvarpskokks og matreiðslubókarhöfundar. Inn í basl hennar við Coq au Vin og fleiri fræga franska rétti fléttast líf fyrirmyndarinnar, Juliu, þegar hún stígur sín fyrstu skref í matargerð í Frakklandi. Meryl leikur Juliu Childs snilldarlega og nær af ótrúlegri nákvæmni talshætti hennar og líkamlegu látbragði.
Inn í skóginn
Að lokum má svo nefna að hún var tilnefnd fyrir myndina Into the Woods sem frumsýnd var 2015. Meryl er þarna í aukahlutverki en þessi mynd er gerð eftir söngleik sem sýndur var á Broadway við miklar vinsældir. Þetta er ævintýri um barnlaus hjón sem vilja allt gera til að eignast barn en lenda í klóm illrar nornar og þurfa að sigra hið illa svo allt fari vel að lokum.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







