Vandratað er meðalhófið

Steingerður Steinarsdóttir

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar. 

 

Vandratað er meðalhófið. Líklega gerir fáir sér betri grein fyrir hinum djúpstæða sannleika sem fólgin er í þessum gamli málshætti en þeir sem hafa þurft að glíma við afleiðingar eigin óhófs á einhverju sviði. Ekki er langt síðan frelsi í viðskiptalífinu var dásamað á Íslandi en reyndist þegar upp var staðið eiga meira skylt við stjórnleysi og spákaupmennsku. Staðreyndin er sú að frjálsræði án landamæra eða marka er ekki eftirsóknarvert og er í sjálfu sér andstæða alls þess sem við sækjumst eftir. Öll heimspeki og trú á rætur sínar í viðleitni mannsins til að koma skynsamlegum böndum á stjórnleysið og eigin veikleika til að öðlast frelsi til að velja og  beita hyggindum sínum við valið. Kirkja miðalda taldi hófsemi til einnar af æðstu dyggðum mannsins en græðgina meðal sjö dauðasynda. Þá rétt eins og nú áttu menn erfitt með að gæta hófs í öllu.

Nú á dögum verður æ erfiðara að feta hinn þrönga stíg dyggðarinnar, enda hefur sá breiði, vegur allsnægta og grægði, líklega aldrei verið  jafnaðgengilegur. Afleiðingin er sú að því er nú spáð að við munum lifa lengur en forfeðurnir en glíma við fleiri og alvarlegri heilsufarsvandamál sem munu skerða lífsgæði okkar til muna. Offita, sykursýki, hár blóðþrýstingur, hjartasjúkdómar, liðverkir, gigt, svefntruflanir, meltingarfærasjúkdómar, listinn er í raun endalaus. Maturinn sem við borðum, vinnan sem við vinnum og hreyfingin sem við kjósum mun skera úr um hvernig þessir sjúkdómar leika okkur. Þetta er almenn vitneskja en samt virðist það erfiðara en margan grunar að finna sinn meðalveg.

Staðreyndin er sú að engin ein leið hentar öllum og hver og einn verður að feta sinn stíg sjálfur. Hins vegar eru margir vegvísar og engum er leiðin ófær. Mikilvægasta lexían er sú að muna að manneskjunni er eðlislægt að skapa sér vanabundna hegðun eða rútínu. Skipulag og agi eru einnig orð sem vert er að hafa í huga. Margir eru duglegir að stunda líkamsrækt og hafa verið það allt frá bernsku. Líklegt er að það fólk búi alla ævi að því sem þá var byggt upp.  Sumir virðast einnig hafa mikla og ágæta stjórn á mataræði sínu og kunna sér hóf í hvívetna hvort sem sætindi eru í boði eða einhver hollusta. Mörg góð ráð eru til ákveða með fyrirvara hvað verður borðað og halda sig við ákvörðun sína. Í þessu felst mikil frelsun, frá eilífum vangaveltum um mat og frá því að láta stöðugt freistast af alls konar óþarfa sem maður veit innst inni að er manni ekki hollt. Í þessu felst einnig agi, skipulag og meðvituð hófsemi. Tekin er ákvörðun um að gæta hófs og virða þarfir líkama síns og nærast eingöngu á mat sem gerir honum gott. Árangurinn lætur ekki á sér standa, betri líðan bæði andlega og líkamlega.