Steinar Jóhann Lúðvíksson blaðamaður, ritstjóri og rithöfundur er látinn áttatíu og fjögurra ára að aldri. Steinar var afkastamikill rithöfundur og bækur hans Þrautgóðir á raunastund; Björgunar- og sjólysasaga Íslands, eru í senn áhrifamiklar sögur af baráttu manna við hafið og sagnfræðileg heimild. Steinar hafði einstaklega gott vald á íslensku máli, var rólegur maður og yfirvegaður og þeir ungu blaðamenn er hófu ferilinn undir hans handleiðslu þegar hann var aðalritstjóri á tímaritaútgáfunni Fróða minnast hans af miklum hlýhug. Undirrituð er í þeim hópi.
Steinar var kennari að mennt en starfaði við blaðamennsku og ritstörf alla starfsævina. Hann hóf störf á Morgunblaðinu árið 1965 en færði sig yfir á tímaritaútgáfuna Frjálst framtak árið 1977 þar sem hann tók við ritstjórastarfi. Hann var útgáfustjóri hjá Erni og Örlygi á árunum 1980–1983 en færði sig aftur til Frjáls framtaks, er síðar varð að Fróða hf. árið 1983. Þar starfaði hann til ársins 2006 þegar hann hætti til að helga sig ritstörfum. Síðasta bók hans, Þrútið var loft og þungur sjór kom út árið 2024.
Steinar fæddist 31. september 1941 á Hvammstanga, sonur Ingibjargar Benediktsdóttur og Lúðvíks Jóhannessonar bónda. Auk blaðmennsku og ritstarfa gengdi Steinar margvíslegum trúnaðarstörfum í þágu íþróttahreyfingarinnar, var m.a. formaður Samtaka íþróttafréttamanna 1977 til 1978 og sat í stjórn Stjörnunnar í Garðabæ 1983 til 1988. Hann var varaformaður Handknattleikssambands Íslands á árunum 1986 til 1989 og í stjórn Afreksmannasjóðs Íþróttasambands Íslands auk fleiri félagsstarfa.
Steinar vann ævinlega að ritstörfum meðfram öðrum verkum og nefna má að Þrautgóðir á raunastund, urðu alls tuttugu og tvö bindi sem komu út á árunum 1969 til 1988. Hann ritaði sögu Garðarbæjar í fjórum bindum, skrifaði sögur ýmissa íþróttagreina hér á landi, ævisögu Sveins Benediktssonar og ævinminningar Sigurðar Helgasonar. Auk ótal fleiri bóka um margvísleg efni en alls skrifaði hann um 60 bækur. Með Steinari er genginn merkur maður er hafði afgerandi áhrif á þróun fjölmiðlunar á Íslandi auk þess að láta eftir sig ómetanlegar heimildir um sögu þjóðarinnar. Eftirlifandi eiginkona Steinars er, Gullveig Sæmundsdóttir kennari og ritstjóri þau eignuðust tvö börn, Lúðvík Örn og Ingibjörgu Hrund er lést árið 1975. Ritstjórn Lifðu núna sendir aðstandenum innilegar samúðarkveðjur og þakkir fyrir allt á liðnum árum.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







