Gulli betra er göfugt nafn

Nöfn skipta fólk mjög miklu máli og eru stór hluti af sjálfsmynd okkar og flestum þykir vænt um nafnið sitt. Á Íslandi er sérstök nafnahefð eða sú að kenna börn við föður sinn eða móður og einnig að konur haldi eftirnafni sínu eftir að þær giftast. Við erum flest hreykin af þessir sérstöðu og viljum halda í hana. Okkur finnst líka mikilvægt, eins og flestum öðrum manneskjum, að halda í nöfn innan fjölskyldu, skíra börnin okkar í höfðið á einhverjum.

En sumir skipta um nafn eða ganga undir fleiri en einu nafni um ævinni og það af ýmsum ástæðum. Langalgengast er að nafnið verði vörumerki og fólk kjósi þess vegna að breyta því eða stytta til að tryggja að það sé aðgengilegra en stundum eiga listamenn líka til að fela sig undir nýju nafni til að geta öðlast listrænt frelsi, losna undan sínu þekkta nafni. Það að enginn viti hver er að baki nafninu verður líka stundum partur af verðmæti þess. Þannig fannst sumum að þegar Reuters tilkynnti nýlega að þeir vissu hið rétta nafn götulistamannsins Banksy kvað fólk um allan heim uppúr með að það vildi ekki vita hver væri að baki listaverkunum sem birtast svo óvænt og senda ævinlega góð skilaboð til illra afla í heiminum.

John le Carré er höfundarnafn David Cornwall. Hann varð að taka upp annað nafn því hann var enn starfandi í bresku leyniþjónustunni þegar hann byrjaði að skrifa sínar frægu njósnabækur. Þær voru mjög vinsælar á tímum kalda stríðsins og margar kvikmyndir gerðar eftir sögum hans sú nýjasta Our Kind of Traitor var gerð árið 2016. John Le Carré lést árið 2020.

Elena Ferrante er ein allra vinsælasta skáldkona nútímans. Napólíbækur hennar hafa verið þýddar á ótal tungumál, sjónvarpsþáttaraðir og leikgerðir gerðar upp úr þeim og nýir áfjáðir lesendur halda áfram að grípa þær. Hún kýs hins vegar að halda nafnleynd og segir að bækur hafi enga þörf fyrir höfund eftir að þær hafi verið skrifaðar og gefnar út. Það er athyglisvert að þegar Glaudio Gatti, ítalskur blaðamaður, birti frétt um raunverulegt nafn höfundar þá urðu viðbrögðin svipuð og við frétt Reuters um Banksy. Stór hópur aðdáenda snerist öndverður gegn miðlinum og blaðamanninum. Gagnrýnendur, lesendur og fleiri skrifuðu athugasemdir og greinar til að lýsa yfir að virða bæri ósk listamanns um nafnleynd væri hún til staðar og listaverkið stæði eitt og sér og engin þörf á að vita hver væri að baki.

L. James höfundur bókana um Fimmtíu gráa skugga heitir Erica Mitchell. Hún er gift og hefði getað tekið upp nafn eiginmanns síns Leonard en kaus að velja alveg nýtt nafn þegar hún fór að skrifa um þau Anastasiu Steele og Christian Grey. Hún er mikill aðdáandi Twilight-bókanna og skrifaði gjarnan vel úthugsaðar færslur um þær inni á aðdáendasíðum undir nafninu Snowqueens Icedragon.

Ekki verið að fela neitt

J.K. Rowling kallar sig Robert Galbraith þegar hún skrifar sínar geysivinsælu sakamálasögur um þau Cormoran Strike og Robin Ellacott. Það lak hins vegar fljótt hver var að baki þessu nafni og undanfarið hefur verið mikið tekist á um bækur Roberts Galbraith vegna afstöðu höfundar til transfólks en skáldkonan hefur látið ýmis fordómafull ummæli falla.

Að baki höfundarnafninu Ellery Queen voru frændurnir, Fredric Dannay og Manfred  Bennington Lee. Þeir gáfu út þrjátíu bækur undir þessu heiti um einkaspæjarann snjalla og Manfred ritstýrði auk þess tímaritinu, Ellery‘s Queen Mystery Magazine. Sjónvarpsþáttaröð eftir sögunum var gerð í Bandaríkjunum á seinni hluta áttunda áratugs síðustu aldar sem nutu mikilla vinsælda. Þeir skrifuðu einnig bækur undir nafninu Barnaby Ross og vert er að taka fram að Dannay og Lee voru ekki þeirra réttu eftirnöfn.

Patricia Highsmith hóf ferilinn með smásögum í Ellery‘s Queen Mystery Magazine. Hún skrifaði síðar tuttugu og tvær bækur þar á meðal hina frægu, Strangers on a Train og The Talented Mr. Ripley. Hún skrifaði söguna The Price of Salt, undir höfundarnafninu Claire Morgan en þetta er meðal fyrstu skáldsagna þar sem samkynhneigður höfundur  ekki er fer ekki í felur með kynhneigð sína. Bókin kom út árið 1952 og nýtur enn vinsælda.

Ray Bradbury á það sameiginlegt með Stephen King að vera óvenjulega afkastamikill.

Verið að fela afköstin

Flestir telja það kost að vera afkastamikill en Ray Bradbury höfundur Farhrenheit 451 og The Martian Chronicles er meðal leiðandi höfunda í vísindaskáldsagnageiranum. Hann var tilnefndur til Pulitzer-verðlauna en hann skrifaði iðulega smásögur undir alls konar nöfnum og seldi þær hinum og þessum tímaritum. Þar birtust þær án þess að nokkur vissi hver var að baki og stundum átti hann fleiri en eina sögu í sama tölublaði. Það sama gerði Stephen King en það þykir með ólíkindum hve fljótur hann að er að setja saman bækur og smásögur. Hann hefur skrifað undir þónokkrum höfundarnöfnum.

Þegar Isac Asimov höfundur Opus 100 hóf að skrifa Lucky Starr-bækurnar var útgefandi hans með áætlanir um að selja sjónvarpi réttinn til að gera eftir þeim þætti. Isac var þá þegar vel þekktur og virtur höfundur svo hann kaus að skrifa um Lucky undir nafninu Paul French.

Sophie Kinsella höfundur hinna geysivinsælu bóka um kaupalkann heitir í raun Madeleine Wickham. Hún hafði fengið útgefnar bækur undir því nafni áður en hún fór að skrifa léttar ástarsögur. Fyrri bækur hennar voru alvarlegri og þegar hún fór að skrifa um kaupalkann kaus hún að taka upp annað nafn vegna þess að hún vildi ekki fá samanburðinn. Núna skrifar hún nær eingöngu undir höfundarnafninu Sophie Kinsella og hefur náð metsölu víða um heim.

Michael Keaton breytti nafninu sínu vegna þess að fyrir var í Hollywood leikari að nafni Michael Douglas.

Leikarar líka

Það eru ekki bara rithöfundar sem skipta um nafn. Leikarar gera það líka en þá oftast til að taka upp eitthvað þjálla, eitthvað sem er líklegt til að límast fast í heila áhorfenda og skila þeim skjótari frægð en löng og flókin eða hversdagsleg og óáhugaverð nöfn. Allir vita til dæmis að Norma Jean Baker varð að Marilyn Monroe. Vin Diesel er líka áhugaverðara en Mark Sinclair. Whoopi Goldberg eftirminnilegra en Caryn Elaine Johnson. Tina Fey var skírð Elizabeth Stamatina Fey en kaus að nota gælunafnið sitt Tina sem er dregið af millinafninu Stamatina.

Michael Keaton hét upphaflega Michael Douglas en hann breytti nafninu sínu til að tryggja að enginn ruglaði honum saman við hinn Michael Douglas-inn í Hollywood. Natalie Portman þekkja allir og dást að þessari hæfileikaríku leikkonu sem hefur meðal annars unnið Óskar fyrir frammistöðu sína í Black Swan. Skírnarnafn hennar er hins vegar Natalie Hershlag og óneitanlega er Portman þjálla. Það mun hins vegar vera fjölskyldunafn móðurömmu hennar.

Aaron Paul er þekktastur fyrir hlutverk sitt í Breaking Bad. Raunverulegt eftirnafn hans er Sturtevant og meira að segja fólk með ensku að móðurmáli á í vandræðum með að bera það fram. Við getum ekki annað en verið honum sammála um að Paul er mun þægilegra.

Jamie Foxx upplifði á hinn bóginn að Eric Marlon Bishop væri hvorki eftirminnilegt né heppilegt nafn fyrir uppistandara en þannig hóf hann ferilinn. Hann breytti því þess vegna og óneitanlega eru tvö xx smart og skiluðu honum þeirri athygli sem hann þurfti.

Charlie Sheen hafði allt aðrar ástæður fyrir sinni nafnabreytingu. Hann tók upp sviðsnafn föður síns en í hans tilfelli var breytingin gerð löglega. Martin Sheen notar sitt hins vegar í vinnunni en heitir áfram Estévez í einkalífinu. Bróðir Charlie, Emilio kaus á hinn bóginn að halda fjölskyldunafninu enda vildi hann gjarnan sanna sig án þess að vera borinn saman við föður sinn og bróður. Undanfarið hefur hann þó alfarið snúið sér að handritaskrifum og leikstjórn svo hann á ekki lengur í samkeppni við aðra í fjölskyldunni.

Tekist á um nöfn

„Hvað er nafnið? Það sem nefnt er rós, það ilmar eins þótt öðru nafni kallist,“ segir Júlía af svölunum við Rómeó í þýðing Matthíasar Jochumssonar. Það er stundum tekist á um nöfn og menn geta haft misjafnar skoðanir á hversu miklu máli þau skipta.

Þannig þurfti ung stúlka talsvert að hafa fyrir því að fá að heita Blær en nafnið fékkst loks staðfest fyrir dómstólum. Hið sama gilti um Jón Gnarr. Það var ekki fyrr en árið 2015 að dæmt var í hans máli en þá hafði það velkst um tíma milli stofnana og mannanafnanefndar. Á sínum tíma var listamanninum Balthasar Samper gert að breyta nafni sínu ef hann vildi fá íslenskt ríkisfang en öllum aðfluttum Íslendingum voru settir þessir afarkostir. Balthasar fékk hins vegar leyfi til að halda sínu vegna þess að hann var þegar þekktur fyrir list sína undir þessu nafni og dómari féllst á að það gæti skaðað hagsmuna hans að breyta því. Sumum finnst mannanafnalöggjöfin alltof ströng og vilja afnema mannanafnanefnd og gefa fólki fullkomlega frjálst að skíra börn sín hvaða nöfnum sem er og taka upp hvaða nöfn sem þeim sýnist síðar á ævinni. En hvort sem algjört frelsi er æskilegt eður ei verður nafnið ávallt órjúfanlegur hluti af manneskjunni eða listinni sem hún skapar. Stundum skiptir persónan að baki máli og stundum ekki.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.