Allt sem þú vilt vita um Ódysseifskviðu?

Kvikmyndin Oddysseifskviða er til sýninga í kvikmyndahúsum núna með Matt Damon í hlutverki konungs Íþöku og Anne Hathaway leikur Penelópu konu hans. Allir þekkja að einhverju leyti söguþráðinn, hafa heyrt af Trójustríðinu, sírenusöngvum, kíklópum, skrímslinu Skyllu og vonbiðlum og vefnum hennar Penelópu. Það má þakka Sveinbirni Egilssyni sem þýddi kviður Hómers á íslensku og Odysseifskviða kom fyrst út árið 1828. En ef þú ert að hugsa um að sjá stórvirki Christophers Nolans í bíó þá eru hér nokkur atriði sem gott er að vita áður.

Ódysseifskviða er epískt ljóð sem var fyrst skráð niður á sjöundu eða áttundu öld fyrir Krist. Sennilega er kviðan mun eldri og varðveitt í munnlegri geymd þar til menn fóru að rita niður slíkar gersemar. Hún er seinni af tveimur kviðum skáldsins Hómers en sú fyrri er Illíonskviða. Í henni er sagt frá aðdraganda Trójustríðsins og lyktum þess en í þeirri síðari frá heimför Ódysseifs konungs til Íþöku en Póseidon leggur stöðugt steina í götu hans og ætlar sér að koma í veg fyrir að hann rati heim. Heima situr Penelópa og bíður manns síns. Hún kærir sig ekki um neinn af þeim fjölmörgu vonbiðlum er sitja um hana og veit að hún er fullfær um að stjórna ríki sínu og lífi sínu ein og sjálf. Karlar ráða hins vegar veröldinni og konur eiga ekki að vera án leiðandi karlmannshandar. Hún nýtur velvildar gyðjunnar Aþenu og þær senda Telemakkus son Odysseifs af stað að leita að honum.

Ódysseifur elskar konu sína þótt hann hafi ekki verið henni alveg fyllilega jafntrúr og hún honum. Í það minnsta hefur hann dvalið hjá dísinni Kalypsó á eynni Ógygíu í alltof langan tíma en margar aðrar þrautir hefur hann þurft að takast á við og leysa í viðleitni sinni til að komast heim. Kvæðið er um 12.000 ljóðlínur og þýðing Sveinbjörns á því snilldarlega vel unnin. Honum auðnaðist reyndar ekki aldur til að klára hana en sonur hans Benedikt Gröndal tók við verkinu og lauk því.

Skylla

Þessar tvær kviður hafa haft ótrúleg áhrif á vestrænan skáldskap og mótað mörg skáld. Virgill er einn þeirra er tók upp bragarháttinn og valdi sér söguleg viðfangsefni vegna þeirra og James Joyce taldi þennan skáldskap einstakan. Margaret Atwood hefur sagt að stílsnilld Hómers, ef hann var þá til og raunverulega höfundur kvæðanna, hafi snortið sig og reynst sér fyrirmynd að mörgu í hennar eigin bókum. En ekki síður hafa verurnar sem mynda heim Hómers haft sín áhrif. Hinir breisku menn sem sagt er frá og guðirnir sem eiga sín uppáhöld og kolbíta. Sírena er til að mynda orð sem enn í dag er notað yfir fagra konu en grimma konu, konu sem ekki er treystandi. En í gegnum allar flækjurnar skína samt alls konar mannlegir eiginleikar, tilfinningar og hæfileikar. Hér eru hugrakkar hetjur, kænar konur og slungnir menn, trúmennska, ást og þrá eftir heimahögunum, fjölskyldunni og þeim böndum sem hún bindur.

Skoðum helstu persónur:

  • Odysseifur: Konungur of Íþöku, þekktur fyrir kænsku og visku. Það var hann sem fékk hugmyndina að Trójuhestinum.
  • Penelópa: Drottning Íþöku og eiginkona Ódysseifs. Hún er ekki síður kæn en hann og þekkt vegna tryggðar sinnar og trúmennsku.
  • Telemakkus: Prins af Íþöku, sonur Odysseifs og Penelópu.
  • Menelás: Konungur Spörtu, bróðir of Agamemnons, konungs Mýkenu.
  • Helen af Tróju: Eiginkona Menelásar. Hún hljópst á brott með París prinsi af Tróju og það kom átökunum af stað.
  • Násíka: Prinsessa af  Fæöku. Hún finnur Ódysseif þar sem hann hefur rekið upp í fjöru eftir skipbrot.
  • Evmeos: Svinhirðir á Íþöku fullkomlega trúr konungi sínum Ódysseifi.
  • Lærtes: Faðir Ódysseifs, konungur  Kefalóníu.
  • Biðlarnir: Meira en hundrað menn setjast upp á Íþöku og neita að fara. Þeir ætla sér að neyða Penelópu til að velja einnn úr þeirra hópi sem næsta eiginmann sinn.

Karýbdís

Guðir og skrímsli

  • Aþena: Viskugyðjan, dóttir Seifs. Hún dulbýr sig sem Mentes og síðan Mentor og gerist ráðgjafi eða mentor Telemakkusar.
  • Póseidon: Sjávarguðinn og helsti óvinur Ódysseifs.
  • Helíos: sólarguðinn. Menn Ódysseifs éta nautgripi hans.
  • Hermes: sendiboði guðanna. Hann tekur að sér að sem við Kalypsó um að sleppa Ódysseifi.
  • Kalýpsó: dís sem verður ástfangin af Ódysseifi.
  • Polýfemus: eineygður risi sonur Póseidons.
  • Sirse: tælandi norn, dóttir Helíosar
  • Skylla og Karýbdís: Skylla er skrímsli með mörg höfuð en Karibdis hringiða sem bíður þess að gleypa skip með manni og mús. Þær búa sitt hvorum megin við þröngt hættulegt sund og sjá til þess að sjófarendur farist.
  • Sírenur: fagrar syngjandi kvenverur sem ómögulegt er að standast en þær drepa aðdáendur sína jafnóðum og þeir falla fyrir töfrum þeirra.