Góðir dagar til að rifja upp og kynnast nýju

Sumarið er tími nýrra uppgötvana, þá er gaman að leita uppi nýja staði, hlusta á nýstárlega tónlist og lesa þær bækur sem hafa farið framhjá manni yfir veturinn. Að undanförnu hafa rekið á fjörur okkar spennandi hluti, sumt gamalt en nýtt fyrir okkur en annað ferskt eins nýslegnir túskildingar.

Sandy Denny

Rödd úr fortíðinni

Sandy Denny naut mikilla vinsælda á sjötta áratugnum í Bretlandi en hún var lagahöfundur og söngkona. Hljómsveit hennar Fairport Convention varð Led Zepplin mikill innblástur þegar þeir hófu að semja tónlist og spila og Sandy söng dúett með Robert Plant í laginu The Batte of Evermore. Reyndar söng hún einnig með okkar eina sanna Magga Kjartans á sóló plötu hans Clockworking Cosmic Spirits, lagið My Sweet Little Lady Friend. Þekktasta lag Sandyjar er Who Knows Where the Time Goes. Margir stórsöngvarar hafa tekið það og gert að sínu meðal annars Nina Simone og Eva Cassidy. Það er vel þess virði að rifja upp þessa rödd úr fortíðinni. Sandy lést árið 1978 aðeins 31 árs eftir tvö slæm höfuðhögg það fyrsta hlaut hún þegar datt niður stiga á heimili foreldra sinna í Wales. Hún vildi ekki leita sér læknishjálpar og skömmu síðar datt hún aftur niður stiga á heimili sínu í London og hlaut annað högg. Skömmu síðar fannst hún meðvitundarlaus á stigapalli á heimili vina sinna og var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést án þess að hafa komist til meðvitundar aftur. Hún glímdi við fíkn og hjónaband hennar og Trevor Lucas var stormasamt. Þau áttu dóttur sem Sandy var ófær um að annast og Trevor hafði skömmu fyrir andlát hennar tekð dóttur þeirra og farið með hana til heimalands síns, Ástralíu.

Gamla rafstöðin í Elliðaárdal

Kaffihúsið Elliði í gömlu rafstöðinni í Elliðaárdal er einstaklega skemmtilegt. Þar er hægt að fá létta máltíð, gott kaffi og fínasta kaffimeðlæti. Umhverfi kaffihússins er yndislegt og andrúmsloftið innandyra notalegt. Þarna er gaman að vera með börn því þau geta notið náttúrunnar allt í kring.

Vert að horfa á

Þeir sem ekki þekkja þættina The Pitt ættu að kíkja eftir þeim í rigningarveðrinu sunnanlands. Þessir þættir voru tilnefndir til flestra Emmy-verðlauna í ár eða 25 og þeir unnu fimm. Þeir eru læknaþættir í svipuðum anda og ER. Áhorfendur tala hins vegar um að The Pitt séu raunsærri og betur leiknir en ER. Það er Noah Wylie sem leiðir hópinn en hver þáttaröð spannar eina vakt á bráðamóttöku sjúkrahúss. Líkt og venjulega í slíkum þáttum kynnast áhorfendur bæði sjúklingum og starfsfólki.

Ilmur af sumri

Sumarið er dásamlegur tími til að njóta skilningarvitanna. Eftir góðan rigningaskúr liggur í loftinu gróðurangan og hægt er anda að sér ferskum ilmi. Sumir segja að sól og sandur eigi sína lykt líka, sömuleiðis vatnið og skógurinn. Laugarás Lagoon er eitt nýjasta baðlón landsins en þar er hægt að kaupa sturtugel, sjampó og hárnæringu sem ilma af íslenskum móa. Dásamleg angan og frábær vara. Hér er um að ræða vöru framleidda í nágrenninu og ilmurinn var sérhannaður fyrir baðlónið.