Verið velkomin í kvöldgöngu í miðbæ Reykjavíkur fimmtudagskvöldið 23. júlí þar sem gengið verður um slóðir rithöfundarins Halldórs Laxness og verka hans.
Halldór Guðmundsson, bókmenntafræðingur og höfundur ævisögu Halldórs Laxness, leiðir göngufólk um slóðir ævi og verka nóbelskáldsins í miðbæ Reykjavíkur. Sagt verður frá fæðingarstað Halldórs og nokkrum stöðum í miðbænum þar sem hann bjó ungur eða var tíður gestur.
Halldór skrifaði ekki margar Reykjavíkursögur, en komið verður við á söguslóðum Brekkukotsannáls og Atómstöðvarinnar, meðal annars. Varpað verður ljósi á tengsl Halldórs við höfuðstaðinn, þar sem bjuggu ekki nema tæplega sjö þúsund manns, þegar hann fæddist.
Gangan hefst kl. 20:00 við Laugaveg 32 og tekur um eina og hálfa klukkustund.
Ókeypis er í gönguna og fer hún fram á íslensku.
Kvöldgangan er hluti af viðburðarröðinni Kvöldgöngur sem er samstarfsverkefni Borgarbókasafns, Borgarsögusafns og Listasafns Reykjavíkur. Kvöldgöngurnar fara fram á fimmtudögum yfir sumarmánuðina og eru með öllu gjaldfrjálsar
Nánar um gönguna á fimmtudag og heildardagskrá kvöldganga hér:







