Á Suður-Ítalíu gulna sítrónur fyrirhafnarlaust hvert ár en norðar, við Gardavatnið, er sítrónuræktin erfiðari. Þrátt fyrir það ákváðu hugvitssamir munkar að reyna að fá þennan eftirsótta ávöxt til að blómstra og það tókst.

Hér sjást vel bjálkarnir sem lagðir eru yfir lundina til að búa til þak yfir trén á veturnar.
Á miðöldum voru sítrónur mikilvæg uppspretta C-vítamíns og helsta ráðið til að koma í veg fyrir og lækna skyrbjúg. Munkarnir bjuggu til áveitukerfi og söfnuðu vatni úr fjallalækjum Gardafjallanna fyrir ofan Gargnano, bæ innarlega við Gardavatnið næst Ölpunum. Þetta var á fjórtándu öld og það þurfti meira til en vel útfært vökvunarkerfi. Þeir byggðu sítrónubeðin í stöllum og reistu girðingar og stóra stöpla umhverfis þau. Á veturna var sett þak yfir stöplana og gler á milli þeirra. Þannig gátu þeir varið viðkvæmar plönturnar og tryggt uppskeru næsta árs. Þetta var á fjórtándu öld og ljóst að í Fransiskus klaustrinu var að finna ansi útsjónarsama verkfræðinga.
Sítrónurnar blómguðust og í kringum aldamótin 1700 náði uppskeran og iðnaðurinn í kringum hana hámarki. Í þessum litla bæ og í hlíðunum allt um kring var allt krökkt af sítrónubúum, enda hafði fólkið í Gargnano lærði að búa til margvíslegar afurðir úr þeim. Um árabil voru fleiri hundruð tonn af sítrónum flutt frá Gargnano til Norður-Evrópu. Società Lago di Garda sá um að velja hvaða sítrónur voru hæfir til útflutnings og hverri og einni var pakkað í pappír og í kassa, skipað um borð í báta og fluttar eftir Riva del Garda. Á þessum árum þótti eftirsóknarvert að kaupa sér hús við hlið sítrónulunda og rækta þá af natni og ástúð.

Milli steinsteyptu stöplanna er sett gler á veturnar.
Fólkið flutti burt og verkkunnáttan týndist
En árin liðu og urðu að öldum og búin lögðust af eitt af öðru. Það var of mannfrekt og dýrt að halda þeim við og unga fólkið tók að flytjast í borgirnar. Flestir sítrónulundirnir fóru í órækt og húsin við hlið þeirra dröbbuðust niður. Fabio Gandossi mátti hins vegar ekki hugsa til þess að sítrónurnar hyrfu úr Gargnano svo hann tók við niðurníddum búgarði föður síns og endurbyggði. Þar er nú síðasti sítrónubúgarður við Gardavatnið.
Hann segir það ekki hafa verið auðvelt verk að endurreisa garðinn, sérstaklega vegna þess að hann vildi einu og öllu fylgja hefðunum og þeim aðferðum sem notaðar höfðu verið frá fornu fari í þessum iðnaði við vatnið. Ræktunin er fullkomlega sjálfbær og allt unnið með handafli. Það var mikið verk að endurbyggja steinstöplana undir þökin og glerveggina því steinsmíði af því tagi hafði nærri lagst af og ekki margir sem kunnu handverkið enn það tókst. Einnig að finna réttu timburbjálkana til að leggja yfir lundina á veturna. Áveitukerfið var einnig laskað vegna skorts á viðhaldi en það var mikill sigur að geta komið því í gang aftur að sögn Fabio.
Sítrónurnar hugsa svo ekki um sig sjálfar. Þær þarf að klippa og snyrta og gefa áburð. Garðyrkjumennirnir í Limonaia di Gargnano gera allt á sama hátt og Fransiskus-munkarnir forðum. Hér kemur tæknin hvergi að. Þótt Fabio hafi oft búið langdvölum annars staðar en í Gargnano, en hann er listamaður og sinnir list sinni hluta úr ári, hefur ástríða hans fyrir sítrónurækt og landsvæðinu þar sem hann ólst upp alltaf leitt hann aftur heim.

Fabio og Guiseppe Gandossi.
Heimsóknir og fræðsla
Hann býður einnig fólki að koma og skoða búgarðinn, trén sem vaxa í þremur stöllum, áveitukerfið og afurðirnar. Ávextirnir eru á mismunandi þroskastigi á hverjum þeirra og þegar trén í einum eru tilbúin til uppskeru eru þau að blómstra í öðrum. Tvö ár tekur sítrónurnar að ná fyrsta þroska en oft er þær látnar verða þriggja ára áður en þær eru tíndar af trjánum. Árlega koma stórir hópar skólabarna og skoða staðinn og læra ótalmargt um landbúnað, ávaxtarækt, efnafræði, verkfræði og fleira með því einu að ganga í gegnum búið og skoða hin mismunandi stig framleiðslunnar og á hverju hún byggir.
Limonaia Gargnano er í dag opið gestum ef pantað er fyrirfram og gestir geta fengið að ganga um lundina, skoða áveitukerfið og smakka á margvíslegum afurðum. Börkurinn er þykkri á sítrónunum sem vaxa þetta norðarlega en hinum sem eru sunnar og þær eru einstaklega ríkar af C-vítamíni. Börkurinn er bragðmikill og hann er ekki síður mikilvægur þegar farið er að vinna vörur úr ávextinum. Hér fer ekkert til spillis og sítrónumarmelaði, síróp, sultur, chutney, limoncello og fleira og fleira gleður bragðlaukana og hjartað.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







