Í Lazise er að finna bestu ströndina við allt vatnið. Sandurinn er ljós og mjúkur og þótt tjaldsvæði bæjarins eigi hluta af ströndinni er hægt að nýta sér almenningsaðgang annars staðar og njóta þess að sitja, horfa á fólkið að stunda alls konar vatnasport, njóta útsýnis til fjallanna og tilverunnar á einum fegursta stað í heimi.
Þetta er lítill og töfrandi hafnarbær. Gamli bærinn og kastalinn standa alveg niður við vatnið og þar er ævintýri að reika um. Castello Scaligero var byggður af Della Scala-fjölskyldunni sem hér réði lögum og lofum á fjórtándu öld. Kastalinn er í dag í einkaeigu og ekki hægt að skoða hann en virkisveggina má skoða og ganga upp á til að njóta útsýnis yfir vatnið. Sérstaða bæjarins vegna vel varðveittra veggja gamla virkisins og annarra tengsla við menningu og sögu við vatnið að gamli bærinn er skráður í heimsminjaskrá UNESCO.
Lazise er við suðausturenda vatnsins, nálægt Veróna. Þótt þetta sé vinsæll ferðamannastaður er samt hægt að njóta þarna friðar og slökunar. Víða við Gardavatnið eru heitir hverir undir vatnsyfirborðinu og í kringum þá hafa byggst upp heilsulindir. Ein slík er í Lazise og þangað leitar margt fólk ár hvert í leit að heilsubót. Í næsta nágrenni er einnig að finna skemmtigarðana Caneva-vatnsleikjagarðinn og Gardaland tívolíið.
Besta afþreyingin
Mannlíf við Gardavatn á sér langa sögu og Lazise er meðal elstu bæja. Þar er að finna margvíslegar minjar um hugvit manna og hvernig þeir nýttu gjöfula náttúruna allt í kring. Hér er einnig auðvelt að lesa söguna og þræða sig í gegnum hina mörgu herrra og valdsmenn sem komið hafa og farið meðan almenningur vinnur, skapar og viðheldur.
Allar byggingar í gamla bænum eru í Feneyjastíl og endurspegla þannig bæði hversu stutt er til eyjanna og tísku fyrri tíma. Allt í kringum gömlu höfnina blasa við stórhýsi í Feneyjalitum og lagi. Kirkja sankti Nikulásar eða Nicolò, stendur næst gömlu höfninni, falleg bygging í rómönskum stíl. Ef gamlar kirkjur heilla er enginn hörgull á þeim á Ítalíu og aðeins lengra er kirkja sankti Zenones og Martinos. Sú er frá átjándu öld og byggingastíllinn mjög ólíkur.
Stutt frá miðbænum er svo að finna hina fallegu Villa dei Cedri en þar er heilsulindina að finna og höllin er umkringd gróðri og gróðurhúsum. Líklega standast fáir þá freistingu að kíkja þangað inn og fá að slaka á í þessu fullkomna umhverfi.
Miðvikudagar eru markaðsdagar í Lazise og virkilega sniðugt að reyna að koma í bæinn einmitt þá. Ef ferðalangur er svo heppinn gefst einstakt tækifæri til að kaupa vín frá nærliiggjandi vínekrum, gómsæta ólífuolíu og osta.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







