Að ganga hægt um græðginnar dyr

Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlaráðgjafi og leiðsögumaður skrifar. 

 

Ólíkt höfumst við að. Það var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég steig upp í rútuna á flugvellinum í Búdapest á dögunum. Þar stóð elskulegur maður og bað okkur um að sýna skilríki. Þið þurfið ekkert að borga, sagði hann brosandi. Aksturinn frá flugvellinum inn í miðborgina tók svipaðan tíma og akstur með flugrútu frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur sem kostar um 4000 krónur. Konan í móttöku hótelsins fræddi okkur um að fólk á okkar aldri gæti nýtt sér allar almenningssamgöngur borgarinnar án endurgjalds bara með því að sýna skilríki. Við höfum alveg ráð á því að borga fyrir okkur í sporvagn eða strætisvagn en það voru móttökurnar sem skiptu okkur máli. Okkur fannst við strax velkomin til Ungverjalands.

Auglýsing

Ekki spillti þegar við heimsóttum eitt stærsta listasafn borgarinnar. Þar vorum við spurð hvers lensk við værum. Þegar það lá fyrir að við værum útlendingar var okkur sagt að við fengjum helmings afslátt. Þegar afgreiðslukonan hafði skoðað vegabréfin okkar sagði hún að við fengjum ókeypis aðgang þar sem við værum komin yfir sjötugt. Við ákváðum að stoppa í kaffiteríunni í safninu til þess að skilja eitthvað eftir okkur sem þakklætisvott. Enn og aftur, við höfum alveg ráð á því að borga en það er viðmótið sem skiptir máli.

Ég hef starfað við leiðsögn hér heima undanfarin tíu sumur. Á þessum árum hefur margt breyst á Íslandi í sambandi við viðhorfið til ferðamanna og viðhorf ferðamanna til okkar. Fyrir nokkrum árum gat ég t.d stolt sagt mínum ferðalöngum að eldri borgarar gætu farið ókeypis í sund. Það gildir ekki lengur fyrir útlendinga. Þegar ég ferðast um Suðurlandsundirlendið með hópana mína þarf ég nú að velja vandlega hvar við stoppum til þess að halda mig innan fjárhagsramma. Allt kostar. Stopp við Urriðafoss, Seljalandsfoss, Skógarfoss, Sólheimajökul, Sólheimasand, Dyrhólaey og Reynisfjöru. Þetta er bara á leiðinni frá Selfossi til Víkur. Hvert af þessum stoppum kostar. Sennilega hef ég gleymt einhverjum stöðum í þessari upptalningu.

Þegar ég er búin að nota “stopp“fjármagnið í bílastæðið við Seljalandsfoss og bruna fram hjá Skógarfossi reyni ég að benda í átt til hafs og koma með einhverja skemmtisögu til þess að draga athygli hópsins frá þessari náttúruperlu. Ramminn leyfir ekki slopp!

Mér brá illilega þegar ég heyrði nýjustu hugmyndir yfirvalda um að taka sérstakt gjald fyrir ferðir um Gullna hringinn. Ég veit ekki á hvaða vegferð við erum. Sú var tíðin að við héldum að fiskurinn í sjónum væri endalaus og það væri um að gera að veiða nóg. Ég tók þátt í því að salta síðustu síldarnar fyrir austan 1967-8. Við vorum á góðri leið með að gera slíkt hið sama með þorskinn en bar gæfa til þess að koma í veg fyrir það.

Einhvers staðar stendur að svipull sé sjávarafli. Þetta á líka við um ferðamannaiðnaðinn ef hægt er að tala um iðnað þegar lifandi fólk er hráefnið.  Það er ekki sjálfgefið að fólk vilji koma til Ísland eða hafi ráð á því að koma. Við erum í harði samkeppni við önnur lönd. Síldin hefur varla látið sjá sig síðan við fórum fram úr okkur í mínu ungdæmi. Munurinn á síld og ferðamönnum er mikill. Síldin gat ekki sagt frá eða kvartað yfir græðginni. Ferðamenn sem fara óánægðir heim og vara aðra við ferðalögum til Íslands vega þyngra en örvæntingarfullar auglýsingaherferðir stjórnvalda sem éta örugglega upp töluvert af innkomunni af nýjum gjöldum á ferðmenn. Ég held að við þurfum að ganga hægt um græðginnar dyr.