Brauðtertur eru ferskar og góðar og þykja ómissandi á veisluborð hér á landi. Þær eru auðvitað bæði stórar og seðjandi þannig að flestir hika við að borða þær milli stórhátíða og annarra tilefna í fjölskyldunni en rúllubrauðtertur eru viðráðanlegar og sérlega góðar skoðum nokkrar leiðir til að bæta slíku gómsæti á kaffiborðið á sunnudögum til að fá tilbreytingu og einhvað verulega gott fyrir sjálfan sig og gesti.
Skagenfylling:
- 2 harðsoðin egg, smátt söxuð
- 170 g af smátt söxuðum humarhölum
- 100 g af rjómaosti með dillbragði
- 1 msk. af rauðum hrognum eða kavíar
- 1 dl af sýrðum rjóma (crème fraîche)
- ½ dl af majónesi
Aðferð:
Hrærið saman rjómaostinum, sýrða rjómanum og majónesinu og blandið síðan humrinum og kavíarnum saman við. Smyrjið á rúllutertubrauðið og rúllið því upp. Berið síðan majónesi utan á tertuna og skreytið hana með því sem ykkur þykir best t.d. humarhölum og agúrkusneiðum, sítrónum, rækjum, hvítlauksostbitum eða hverju því sem ykkur dettur í hug að passi vel með fyllingunni.
Annar möguleiki: Lifrarkæfufylling
- 200 g af lifrarkæfu
- 1½ msk. af sýrðum rjóma (crème fraîche)
- ½ dl af sýrðri agúrku (sætsúrri, saxaðri gúrku)
Smyrjið rúllutertubrauðið með lifrakæfu, raðið ofan á sýrðu gúrkunni og rúllið upp. Berið sýrða rjómann utan á það og skreytið
Grunnblanda af sósu fyrir brauðtertur:
- ½ dl af léttþeyttum rjóma
- 1 dl af sýrðum rjóma (crème fraîche)
- ½ dl af majónesi
Aðrar hugmyndir að fyllingum og skreytingum:
- Rækjur
- Reyktur lax
- Skinka
- Egg
- Dill
- Gúrka
- Tómatar
- Vínber
- Ferskjur
- Apríkósur
- Aspas
- Graslaukur
- Vorlaukur







