Kjötsúpa að hausti

Þessi kjötsúpa er hreint út sagt unaðsleg og óhætt að bjóða hverjum sem er í mat. Þá gildir einu hvort gestir eru ungir eða gamlir. Hún er stútfull af næringu og hráefnið er svo gott að útkoman getur ekki annað en orðið góð.

250 g lambakjöt

700 ml vatn

pipar og salt

75 g gulrætur

75 g gulrófa

100 g hvítkál

75 g sellerírót

2 púrrulaukar, niðursneiddir

2 tsk. súpujurtir

lítið búnt af steinselju

4 meðalstórar kartöflur, skornar í bit,a eða 8 smælki

Skerið kjötið í bita og látið í pott. Hellið vatni yfir og kryddið með pipar og salti. Hitið að suðu og fleytið froðu ofan af ef þarf. Skerið gulrætur, gulrófu, hvítkál, sellerírót og púrrulauk og látið út í   ásamt súpujurtum.

Látið súpuna malla rólega í klukkustund og berið fram. Þessi súpa er ekki verri daginn eftir svo gott er að elda ríflegan skammt. Svo má alltaf setja afganginn í frystipoka og frysta til að geta notað síðar ef maður vill ekki borða sama matinn dag eftir dag. Verði ykkur að góðu!

Ritstjórn október 22, 2021 11:00