Á morgun, þriðjudaginn 24. nóvember, verður boðið upp á kyrrðarkvöld á Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal í samstarfi við Dalslaug. Þátttakendum gefst tækifæri til að staldra við í amstri hversdagsins og njóta slökunar, flots og hljóðbaðs í notalegu umhverfi.
Kyrrðarkvöld verður haldið á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal á morgun, þriðjudaginn 24. nóvember. Dagskrá kvöldsins samanstendur af floti, leiddri slökun og hljóðbaði. Í samstarfi við Dalslaug verður þannig boðið upp á flot í innilauginni þar sem þátttakendur geta slakað á og upplifa saman heilandi stund saman í tímaleysi, umlukin vatni. Þá verður leidd slökun í salnum, fyrir þau sem vilja og svo boðið upp á hóphljóðbað undir leiðsögn náttúruþerapistans Jacek Szeloch. Jacek leikur á nepalskar söngskálar, sem eiga að stuðla að djúpri slökun og vellíðan.
Dagskrá kvöldsins hefst kl. 18:00 og stendur yfir til kl. 21:40.
Hér er á ferð einstakt tækifæri til þess að slaka á og endurnæra líkama og huga í fallegu og friðsælu umhverfi.






