Borgarbúar nútímans leiða sjaldnast hugann að því hvaðan maturinn sem þeir kaupa í verslunum er kominn og enn síður að því hvernig hann er unninn. Ljóðabókin Brotnar línur eftir Védísi Evu Guðmundsdóttur neyðir lesendur hins vegar til að upplifa skelkað dýrið, dauðaskotið, gorið, lyktina, innyflin og mannlífið í sláturhúsinu. Ekki fögur mynd, ekki náttúran að hugga heldur fæðukeðjan eins og hún er. Og það er ástin sem gerir það mögulegt að taka sér stöðu við færibandið hvern morgun.
Borgarbarnið mætir á haustvertíð í sláturhúsinu allsendis óundbúið undir það sem þar gerist. Unga stúlkan er ástfangin og þetta er gert til að afla fjár svo hún og kærastinn geti haft það gott saman næsta vetur. Hún vill ekki vera malbikstútta, harkar því af sér. Lætur eins og raunveruleiki sláturhússins snerti hana ekki, að grimmdin, dauðinn og allt sem honum fylgir sé þolanlegur vegna ástarinnar. Að þau, efst í fæðukeðjunni, eigi og megi komast af á kostnað annarra dýra. En efasemdir sækja að og margar tilvistarspurningar vakna.
Hér er einnig brugðið upp áhugaverðum andstæðum og spurningum. Er það óskoraður réttur manna að deyða, ekki bara til að lifa af heldur til að njóta, skapa sér alltaf betra og betra líf? Eru dýrin virkilega réttlægri en maðurinn? Í Brotnar línur birtist nöturleiki æviferils húsdýranna okkar. Þetta er umhugsunarverð bók og áleitin.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







