Nokkrir staðir í heiminum eru ekki bara fallegir heldur hafa eitthvað við sig, einhverja töfra sem gera það að verkum að fólk kemur þangað aftur og aftur. Garda-vatn er einn þeirra. Þangað hafa listamenn leitað eftir innblæstri, elskendur eftir skjóli og mataráhugafólk eftir næringu.
Þetta stærsta vatn Ítalíu er lygnt og djúpt og þótt það sé oft borið saman við Como-vatn og sitt sýnist hverjum um hvort er fegurra, er hér afslappaðra andrúmsloft og einhver ólýsanlegur friður yfir öllu. Í Sirmione við Garda-vatn bjó rómverska skáldið Catullus og var innblásinn af umhverfinu. Það er næsta víst að hann sat og horfði út á vatnið þegar hann skrifaði: „Gjálfrandi gárur vatnsins míns titra af hlátrinum sem liggur í leyni í vatninu þínu.“
Hér er gott útsýni til fjalla þótt þau séu ekki jafnhá og ítölsku Alparnir við Como-vatn og sítrónulundir allt um kring. Enda var það hér sem Goethe dvaldi þegar hann orti: „Þekkir þú land þar sem gul sítrónan grær.“ Í dagbók sína skrifaði hann: „Mikið vildi ég að vinir mínir gætu verið með eitt augnblik til að njóta útsýnisins sem við mér blasir. Ég hefði getað verið í Veróna í kvöld en vildi ekki missa af að sjá Garda-vatn og hið dásamlega landslag við strendur þess. Ég hef hlotið ríkuleg laun fyrir að leggja þessa lykkju á leið mína.“
Skáldin flykkjast að
Hann er ekki eina skáldið sem naut verunnar hér. D.H. Lawrence flýði frá Englandi með ástkonu sinni Friedu Von Richthofen. Hún var þýsk aðalskona, rithöfundur og þýðandi. Meðal annars þýddi hún þýskar bækur og ævintýri. Hún giftist Ernst Weekly, breskum textafræðingi sem var fjórtán árum eldri en hún og átti með honum fjögur börn. Það neistaði strax á milli þegar hún hitti DH Lawrence þegar hann kom í heimsókn til Ernst, fyrrum kennara síns. Þau urðu elskendur og stungu af Þýskalands þegar hneykslið yfir sambandi þeirra varð óbærilegt í Bretlandi.
Þar var D.H. Lawrence sakaður um njósnir en faðir hennar var valdamikill og náði að koma í veg fyrir að hann væri handtekinn en aftur lögðu þau á flótta og gengu yfir Alpana til Ítalíu. Skilnaður Friedu frá eiginmanni sínum gekk í gegn árið 1914 en hún varð að afsala sér börnum sínum. Það var venja að ef annar aðili í hjónabandi hélt framhjá fékk hann ekki forsjá barnanna nema með samþykki hins svikna og Ernst neitaði að láta hana hafa börnin. Frieda og Lawrence giftu sig og bjuggu sæl við Garda-vatn. Þar skrifaði Lawrence Sons and Lovers en talið er að Lady Chatterley’s Lover sé að nokkru leyti byggð á sambandi þeirra. Þau sneru aftur til Bretlands þegar fyrri heimstyrjöldin braust út en í stríðslok fóru þau til Bandaríkjanna og ferðuðust víða þar. D.H. Lawrence lést árið 1930 svo þau fengu ekki langan tíma saman.
Að Garda-vatni kom einnig Somerset Maugham og síðar Graham Greene. Enda er eitthvað við vötn sem bæði nærir og veitir innblástur. Hljóðið þegar aldan brotnar við ströndina, himininn sem speglast í vatninu og hvítfextar öldur þegar vindurinn ýfir yfirborðið. Allt er þetta heillandi og áhrifamikið.
Maturinn maður minn!
Matarmenningin við vatnið er einnig ótrúleg. Hvergi í heiminum er að finna fleiri veitingahús með Michelin-stjörnur á jafn litlu svæði. Flest eru fjölskyldurekin veitingahús, með persónulegan stíl og tekið er á móti gestum af hlýju og yndislegri gestrisni. Flestir matreiðslumenn hér nýta sér hráefni úr nærumhverfinu og byggja á aldagömlum hefðum og uppskriftum. Til hvers að breyta því sem virkar. Hér er risotto vinsæll réttur og gjarnan með smurosti og sardínum úr vatninu.
Garda-vatn er sælustaður og Ítalía dásamlegt land. Þar er að finna allt það sem ferðamaðurinn óskar sér að upplifa og meira til. Hvert hérað hefur sín sérkenni og alls staðar er margt merkilegt að skoða. Mannkynssöguna má lesa úr gömlum byggingum og öðrum merkum fornleifum, listaverk skreyta hvern krók og kima, maturinn er hollur og góður og dverghagir handverksmenn bjóða vörur sínar til sölu.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







