þessa uppskrift dregur blaðamaður Lifðu núna stundum upp þegar hann veit ekki hvað hann á a að hafa í desert.Hún er einföld og fljótgerð og flestum finnst hún góð. Uppskriftin er af vefnum Gottt í matinn og höfundur hennar er Erna Sverrisdóttir.
250 g bláber
2 msk. hunang
Börkur og safi af 1/2 límónu
2½ dl rjómi
1½ dl grísk jógúrt
Tilbúinn hvítur marengsbotn, magn eftir smekk
Fersk mynta eða æt blóm. Má sleppa
Setjið bláber og hunang í pott. Sjóðið saman í 5 mínútur. Takið af hellunni og látið safa og börk af ½ límónu saman við. Kælið.
Þeytið rjómann og hrærið saman við grísku jógúrtina.
Myljið marengs milli fingranna og setjið í 4-6 glös eða setjið alla uppskriftina í eitt fat. Magnið af marengs fer eftir smekk hvers og eins.
Látið ⅓ af rjómablöndunni þar ofan á og ⅓ af bláberjamaukinu.
Endurtakið tvisvar í viðbót þannig að þið hafið þrjú lög af hverju.
Skreytið með myntu eða blómum. Gott að leyfa réttinum að hvíla aðeins áður en borinn fram.