Hversu hátt á rúmið að vera?

Eitt af því sem skiptir máli þegar fólk þegar fólk er að velja nýtt rúm er hæðin á því. „Hversu hátt rúmið á að vera snýst um hversu góð heilsan og hnén eru. Rúmin mega ekki vera það lág að það komi átak á hnén þegar fólk stendur upp,“ segir Herdís Vattnes, starfsmaður Betra baks.  Herdís segir að rúmið megi ekki heldur vera svo hátt að það sé erfiðleikum bundið að setjast á það. Hún segir að algengasta hæðin á rúmum sé 60 til 70 sentímetrar.

Það skiptir líka máli hversu breitt rúmið er. „Ég ráðlegg engum að velja sér rúm sem er mjórra en 90 sentimetrar á breidd. Það er algert lágmark, en ég myndi segja að þægilegt einstaklingsrúm væri frá einum metra og upp í 1,20. Fyrir hjón eða pör myndi ég ráðleggja fólki að kaupa rúm sem væri ekki mjórra en 1,60 og svo er hægt að fá mun breiðari rúm,“ segir Herdís.

Svo er það spurningin um hvort að hjón eða pör eigi að velja eina dýnu eða tvær. „Það er að mörgu leiti þægilegra að sofa á einni heilli dýnu fyrir hjón. Mörgum finnst óþægilegt að hafa miðjuna í rúminu. En ef fólk kaupir rafmagnsrúm þá kaupir fólk tvær dýnur. Mörgum finnst það mikill kostur að geta hækkað undir herðum þegar það er að lesa bók eða horfa á sjónvarp og undir fótum þegar fólk er að hvíla sig.“

Herdís leggur áherslu á að fólk gefi sér tíma til að velja rétta rúmið. Hún segir að fólk geti komið í verslanir Betra baks og fengið rúm heim til að prófa. Það hafi svo mánuð til að ákveða hvort það vilji rúmið eða ekki.

Ritstjórn september 15, 2015 16:38