Er ég að verða vitlaus, eða hvað?

Sigrún Stefánsdóttir

Dr. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlaráðgjafi

Þegar ég opnaði tölvupóstinn minn áðan fékk ég skilaboð frá Póstinum. Your package CG0029633035IS is on the way. Ég var minnt á að ég þyrfti ekki að svara. Það var eins gott, því stundum á ég það til að vera nokkuð hvöss í tilsvörum! Við vorum að koma frá því að koma jólapakka  af stað til Noregs. Tíminn þegar ömmubörnin eru skólanum hefur verið nýttur þrjá daga í röð. Fyrsti morguninn fór í að kaupa jólagjafirnar með tilheyrandi valkvíða. Dagurinn í gær fór í að pakka inn, standa í 2 metra biðröð hjá Póstinu, með grímur og kaupa kassa númer 5. Norðmaðurinn ætlaði svo að klára verkefnið og koma pakkanum í póst á meðan við vorum að bíða eftir því að yngsti maður væri búinn í Frístund. Hann kom aftur út, eldrauður í framan, með pakkann. Röðin er endalaus, var skýringin. Þá var sú stóiska ákvörðun tekin um að ljúka ferlinu kl. 10.00 í dag um leið og pósthúsið opnaði. Við stóðum við dyrnar á mínútunni í hálku og myrkri.

Grímuklædd stúlka vísaði okkur á tölvu úti í horni og bað okkur um að fylla út eyðublöðin. Þá byrjaði ballið. Ég tek það fram að ég vinn daglega við tölvu. En þarna gekk ég á vegg. Það eina sem ég þurfti ekki að fylla út var hæð og þyngd viðtakanda. Ég fyllti út box og var spurð aftur og aftur um sömu upplýsingar. Ef ég ýtti á rauðan takka í horninu á skjánum var mér boðin fagleg netaðstoð. Ég var engu nær og að lokum  þurfti ég að fá aðstoð í þrígang frá grímuklæddu afgreiðslustúlkunni sem notaði bjartan þolinmæðistón á gamalmennin. Þegar þessu lauk bauð hún okkur elskulega að koma að hennar borði til þess að borga og klára dæmið. Sennilega hefur hún áttað sig á því að það væri eina leiðin til þess að koma okkur út.

Í bílnum á leiðinni heim var mér tilkynnt að þetta væri í síðasta sinn sem norska fjölskyldan fengi jólapakka. Ég var líka látin lofa því að vara aðra við að leggja út í svona vegferð með jólapakka. Nú hef ég efnt loforðið. Á meðan þetta er skrifað hlusta ég á Baggalút með lagið Er ég að verða vitlaus eða hvað? á nýjum diski með textum Káins. Reyndar nokkuð góð spurning.

 

Sigrún Stefánsdóttir nóvember 28, 2020 13:47