Fjölhæf og mögnuð leikkona látin

Sigríður Þorvaldsdóttir, leikkona og leikstjóri, er látin. Hún var þekkt fyrir frábæra tímasetningu í gamanhlutverkum, góða söngrödd og hæfni til að hreyfa við áhorfendum.

Auglýsing

Dætur hennar Þórunn Lárusdóttir leikkona, Ingibjörg Lárusdóttir lögfræðingur og Dísella Lárusdóttir óperusöngkona greindu frá andláti móður sinnar á facebook og minntust hennar.

„Elsku hjartans mamma okkar, Sigríður Þorvaldsdóttir, leikkona, hefur kvatt þennan heim, 85 ára að aldri. Hún lést á Landspítala í faðmi fjölskyldunnar rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi, eftir stutt en erfið veikindi,“ segir í færslu systranna. „Mamma var, eins og alþjóð veit, eitt stórt bros og skilur eftir sig stórt skarð í lífi þeirra sem þótti vænt um hana en jafnframt ótal skemmtilegar minningar, endalausa ást og þakklæti.“

Smyglaði sér í inntökuprófið 

Sigríður var fædd þann 12. apríl árið 1941, dóttir hjónanna Ingibjargar Halldórsdóttur hárgreiðslumeistara og Þorvaldar Steingrímssonar fiðluleikara. Tónlistin var henni í blóð borin og einnig handlagni og hún lærði hárgreiðslu á hárgreiðslustofu móður sinnar og varð meistari í því fagi árið 1965. Hana dreymdi um að verða leikkona og sótti leiklistarnámskeið hjá Ævari Kvaran. Fimmtán ára laumaði hún sér í inntökupróf í Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og komst inn þótt hún hefði í raun ekki aldur til en hún var aðeins fimmtán ára. Þegar upp komst um aldur hennar var haldinn fundur og ákveðið að leyfa henni að halda áfram. Hún útskrifaðist úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1958 þá átján ára og var kjörin Ungfrú Ísland sama ár.

Sigríður bjó um tíma í Bandaríkjunum, stundaði framhaldsnám í leiklist Hollywood og starfaði jafnframt í Estelle Harman Actors Workshop. Hún steig á svið úti og lék í kvikmyndum þar í landi en hóf eftir heimkomuna störf hjá Þjóðleikhúsinu. Fyrsta hlutverk hennar var Blanka í Kysstu mig Kata og þar nutu sönghæfileikar hennar sín vel. Næstu ár lék hún ótal hlutverk á sviðinu í Þjóðleikhúsinu og tók auk þess að sér verkefni í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og í Íslensku óperunni.

Sigríður var gift Lárusi Sveinssyni trompetleikara og söngstjóra. Þau fluttu með fjölskyldu sína til Þessalóníki í Grikklandi árið 1979 og þar settist Sigríður á skólabekk og lærði grísku. Árið 1985 settist hún á þing sem varaþingmaður fyrir Kvennalistann og hún var formaður Félags íslenskra leikara árið 1988. Í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar fékk Sigríður heilablóðfall og þurfti eftir það að læra að tala upp á nýtt. Hún sagði frá því í viðtölum að þá hefði jákvæðnin reynst hennar besta vopn. Árið 2006 var Sigríður valinn bæjarlistarmaður Seltjarnarness en árið áður kom út ævisaga hennar „Í gylltum ramma.“