Bandaríska söng- og leikkonan Dolly Parton er látin 80 ára að aldri. Ferill hennar spannar 70 ár því hún byrjaði að spila og syngja 10 ára gömul. Hún samdi mörg hundruð lög og mörg þeirra teljast klassísk í dag og margir aðrir listamenn farið í smiðju hennar og flutt smelli eftir hana. Dolly hlaut 55 Grammy-verðlaun á ferlinum og þótti snjöll leikkona en hún lék 12 kvikmyndum á ferlinum og kom fram í mörgum leikhúsuppfærslum. Hún missti mann sinn Carl Thomas Dean í fyrra og sorgin var henni þungbær. Þau giftu sig árið 1966 og voru ákaflega samhent hjón. Áður hefur verið fjallað um Dolly á Lifðu núna og þá grein má nálgast hér:







