Grái herinn skorar á alþingismenn að fara að lögum!

Eldri borgarar eru orðnir langþreyttir á því að tekjur þeirra hækka almennt ekki í takti við launahækkanir í þjóðfélaginu, þrátt fyrir að kveðið sé á um það í lögum. Grái herinn hefur sent  áskorun til allra alþingismanna um að fara að lögum og hún hljóðar þannig:

Grái herinn skorar á alþingismenn: Farið að lögum.

Almenn umsamin launahækkun hjá BSRB-ASÍ-BHM fyrir árið 2021 eru 15.750 kr.

Fjármála – og efnahagsráðherra hefur sagt  að meginreglan við hækkun ellilífeyris milli ára skuli vera að miða við almennar umsamdar launhækkanir á almennum vinnumarkaði. Það sé í  fullu samræmi við 69. gr. laga um almannatryggingar. (Sjá þingskjal 327 – 149 löggjafarþing)

Það er skýlaus krafa eldra fólks að við ákvörðun um hækkun ellilífeyris fyrir árið 2021 fari Alþingi að lögum og lífeyririnn hækki að lágmarki um 15.750 kr.

Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2021 er hins vegar gert ráð fyrir að ellilífeyrir hækki um 3.6%, sem myndi hækka lífeyrinn um 9.244 kr. á mánuði á sama tíma og lágmarks launahækkun skv. kjarasamningum er 15. 750 kr. Að frádregnum skatti og skerðingum verða þessar 9.244 kr. að rétt um 4000 kr.

Því er fagnað að öryrkjum skuli ætluð 50 þús. kr. eingreiðsla í desember og minnt á jafnræðisreglu í því sambandi.

Eldra fólk hefur ekki samningsrétt og verður að treysta á að Alþingi fari að lögum við ákvörðun um hækkun ellilífeyris.

 

 

Ritstjórn nóvember 26, 2020 15:59