Ragnar og Katrín hvort með sínu nefi

Þau hafa skrifað saman tvær bækur en í ár senda þau frá sér hvort sína söguna. Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og Ragnar Jónasson lögfræðingur eru bæði miklir aðdáendur glæpasagna. Sú sameiginlega ástríða varð til þess að þau prófuðu að leggja saman krafta sína í bókunum Reykjavík og Franski spítalinn nutu mikilla vinsælda. Nú gefst hins vegar tækifæri til að skoða sérstöðu hvors. höfundar um sig.

Grunnhygginn andlegur leiðtogi

Katrín Jakobsdóttir skrifaði BA-ritgerð sína um íslenskar glæpasögur og hefur undanfarin ár kennt kúrsa í Endumenntun HÍ um ýmsar hliðar þessarar tegundar bókmennta. Hún hefur ekki látið þar við sitja heldur reynt sig við að skrifa sjálf slíkar sögur, fyrst í félagi við Ragnar Jónasson en nú stígur hún ein fram á völlinn. Vorblót er skemmtileg og vel fléttuð bók þar sem komið er inn á andlega leit nútímafólks, streitu og leitina að lífsfyllingu.

Auglýsing

Vigdís Magnúsdóttir er með algjörlega gagnslaust doktorspróf í heimspeki en hefur uppgötvað að þekking hennar á ýmsum kenningum liðinna andans manna getur hjálpað henni að blekkja fólk í andlegri leit. Ekki er langt síðan bækur sem báru titilinn Bluff Your Way … og svo kom einhver starfsgrein voru mjög vinsælar. Undirrituð fékk í útskriftargjöf bókina, Bluff Your Way into Journalism og Vigdís gæti vel verið í þeim hópi sem hafa lesið eina slíka og fundist hún hafa fundið fjársjóðinn undir regnboganum. Í það minnsta er hún ákveðin í græða og byrjunin er að fá fólk með sér á helgarnámskeið þar sem slökun, núvitund og sjálfsþekking eru stikkorðin. Vigdís hefur nasavit á hinu og þessu og ákveður að grauta öllu saman og passa sig að fara ekki á dýptina.

Aðalmálið er að verða eins vinsæl og Guttormur Þormar, leiðandi gúrú á Setri andans þar sem Vigdís starfar svo hún safnar í kringum sig vel völdum hópi fylgjenda hans, þekktu fólki í bland við hversdagsfólk svo ekki sé hægt að saka hana um snobb. Og hvað ætti svo að geta farið úrskeiðis? Jú, varla gerist það verra en að ein stærsta hjálparhella allra á Setri andans sé myrt í enda námskeiðsins. Lögreglan á Suðurlandi hefur rannsókn og þótt þau Egill og Þorgerður virki fær í sínu starfi ákveður Vigdís að hefja eigin rannsókn til að forða því að þessi óheppilegi atburður verði til þess að eyðileggja nýhafinn starfsferil hennar.

Persónugalleríið hjá Katrínu er ansi skemmtilegt og skrautlegt. Við kynnumst eyðilegri tilveru auðkýfingsins, einmana íþróttakennara, dapurri fyrrum handboltahetju, prjónandi vinkonum á andlegu ferðalagi, fyrrum þingkonu að sættast við líf sitt eftir ða hafa dottið út af þingi og ýmsir fleiri kíkja inn á sjónsvið lesandans og gegna sínu hlutverki. Rannsóknarlögreglumennirnir Egill og Þorgerður eru líka áhugaverð, bæði einstæðir foreldrar og ekki laust við að streitan sé líka að sliga þau.

Katrín hefur lipran stíl og skemmtileg kímnin er heillandi. Atburðarásin er drifin áfram af gátunni og það verður að segjast að hún er vel unnin og endirinn kom að vissu leyti á óvart. Katrín kann vel þá list að dreifa vísbendingum og segja aldrei of mikið í einu. Vorblót er fín glæpasaga og það væri mjög gaman að fá fleiri bækur um þau Egil og Þorgerði.

Sligaður af sorg

Ragnar Jónasson tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið í lífi Helga Reykdal. Hann er nánast sligaður af sorg eftir að fyrrverandi sambýliskona hans drap konuna sem hann var nýorðinn ástfanginn af. Helgi snýr aftur til starfa í þeirri von að rannsókn glæpamála nái að dreifa huga hans og hann fer að kafa ofan í síðustu mál Huldur Hermannsdóttur fyrirrennara síns í starfi. Svartakóf ber nafn með rentu því myrkur sorgar og voveiflegra atburða grúfir yfir. Sagan rennur vel og atburðarásin er hröð. Það er mjög skemmtilegt hvernig Ragnar fléttar nokkrum málum saman og hér eru í raun þrjár sögur í gangi í einu.

Hulda hvarf og enginn veit fyllilega hvað kom fyrir hana og Helgi veltir fyrir sér hvort svarið sé að finna í gömlum málum sem hún hafði unnið að. Veröld hans snýst hins vegar enn og aftur á hvolf.

Ragnar er snilldarglæpasagnahöfundur og þessi nýja bók er enginn eftirbátur hinna fyrri. Bækur hans eru ævinlega drifnar áfram af persónum, samskiptum þeirra og flókinni gátu. Það er engin tilviljun því Ragnar er mikill aðdáandi Agöthu Christie og fleiri frumkvöðla sakamálasagnaskrifum. Helgi Reykdal á það sameiginlegt með skapara sínum og ein mjög áhugaverð bók fylgir honum í gegnum söguna. Dorothy L. Sayers kemur einnig við sögu og lesandinn verður að gera upp við sig hvort um tilviljanir sé að ræða eða ekki Nú og svo er kannski komið að því að aðdáendur Huldu fái að vita hver örlög hennar urðu.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.