Heyrnartækjastyrkurinn hækkar um tæp 20 þúsund

 

Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra.

Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að hækka styrk vegna heyrnartækjakaupa um rúmar 19 þúsund krónur.  Ráðherrann hefur undirritað reglugerðir sem fela í sér hækkun á greiðsluþátttöku ríkisins í heyrnartækjum úr 30.800 krónum í 50.000 krónur. Áætlað er að kostnaður ríkisins vegna þessa aukist um tæpar 58 milljónir króna á ári miðað við óbreyttan fjölda tækja.

Ódýrustu tækin kosta 55 þúsund

Þeir sem eru sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á að ríkið taki þátt í kostnaði við kaup á hjálpartækjum sem Heyrnar- og talmeinastöð Íslands útvegar.  Þegar sú reglugerð var sett kostuðu ódýrustu fáanleg heyrnartæki tæpar 30.000 krónur. Nú kosta ódýrustu heyrnartæki sem völ er á um 55.000 krónur þannig að kostnaður fólks vegna heyrnartækjakaupa hefur aukist verulega. Hækkunin sem heilbrigðisráðherra hefur nú ákveðið tekur að fullu mið af vísitölubreytingum frá því að fyrri reglugerð var sett árið 2006.

Sama hækkun

Auk þessa hefur ráðherra undirritað reglugerð um styrki vegna kaupa á heyrnartækjum hjá öðrum en Heyrnar- og talmeinastöðinni. Þar er kveðið  á um sömu hækkun, eða  úr 30.800 krónum í 50.000 krónur. Í reglugerðunum er kveðið á um skilyrði fyrir greiðsluþátttöku ríkisins í kaupum á heyrnartækjum þar sem fram koma ákveðin viðmið um heyrn viðkomandi og um hve langt þarf að líða á milli endurnýjunar tækja.

 

Ritstjórn október 16, 2015 12:35