Halla Harðardóttir spyr hver hafi sprengt hafmeyju Nínu Sæmundsson í Tjörninni á nýjársnótt árið 1960 í útvarpsþáttum sem hægt er að nálgast í spilara RUV. Þetta eru fróðlegir og skemmtilegir þættir um atvik sem er einsdæmi í Íslandssögunni en sumir hafa talað um sem best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu. Þrátt fyrir sumir telji sig vita hver sprengdi hafmeyjuna er það ekki á almannavitorði.
Halla byrjar á að segja frá Nínu Sæmundsson þessum merka frumkvöðli í höggmyndalista á Íslandi. Hún fæddist í Nikulásarkoti í Fljótshlíð árið 1892, yngst fimmtán systkina. Sjaldan náðu börn fátækra kotbænda náðu að sækja sér menntun en Nína var fylgin sér og komst út til Kaupmannahafnar og kynntist þar, Helgu, frænku sinni sem var frumkvöðull og viðskiptakona. Nína veiktist og frænka hennar sendi hana á heilsuhæli þar kynntist hún myndlist á heilsuhæli og flaug í framhaldi inn í Konunglegu listaakademíuna i Kaupmannahöfn.
Nína var heppin því konur höfðu nýlega fengið leyfi til að stunda nám við Akademíuna. Fram að því hafði ekki þótt við hæfi að konur væru að vasast í myndlist, helst var vatnslitamálun talin vera miðill sem konur gætu náð valdi á. Engum datt í hug að þær gætu stundað höggmyndalist en Einar Ultzon-Frank var á þessum árum tekinn við deildinni og hann tók konur inn. Þessi íslenska stúlka var því brautryðjandi ekki bara í að sækja sér nám í myndlist heldur einnig í vali á grein innan hennar. Ekki leið á löngu þar til verk Nínu voru sýnd á sýningum bæði hér heima og erlendis og hún útskrifaðist með láði.
Fágun og fegurð einkennir verkin
Árið 1921 dvaldi Nína í Róm en nokkrum árum seinna bauðst henni að sýna í New York og þá varð ekki aftur snúið, næstu þrjá áratugina bjó Nína og starfaði í Bandaríkjunum. Þar naut hún mikilla vinsælda sem portrettlistamaður auk þess sem hún vann mörg stór verkefni. Af opinberum verkum Nínu má nefna Afrekshug sem er að finna á Waldorf Astoria hótelinu í New York en í Los Angeles má finna Prómþeif og minnisvarða um Leif Eiríksson. Víða á Íslandi er að finna verk eftir Nínu t.d. er Móðurást í Lækjargötu í Reykjavík, Maríumynd í Selfosskirkju, Rökkur í Sólheimum í Grímsnesi og Ung móðir við Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð. Nína hélt alla tíð íslenskum ríkisborgararétti sínum og síðustu árin sýndi hún bæði höggmyndir og olíumálverk hérlendis. Nína er fulltrúi klassískrar hefðar í höggmyndalist og ákaflega fáguð í vinnubrögðum. Hún lést árið 1965.
En aftur að hafmeyjunni, þessari formfögru styttu sem fór svo fyrir brjóstið á einhverjum að hann ákvað að sprengja hana í loft upp. Í þáttunum er rakið hvernig það var ekki bara fagurfræði Nínu og nýklassískur stíll hennar sem olli uppþotinu þegar styttan kom. Margir voru á móti staðsetningu hennar úti í Tjörninni, sumir töldu þetta móðgun við unga, framsækna listamenn og styttan gamaldags og enn aðrir álitu að þarna réði pólitík vali á listaverki. Nína galt þess að kalda stríðið var í algleymingi og skörp skil milli vinstri og hægri vængja hins pólitíska litrófs. Mikil gerjun var einnig í listalífinu og margskonar straumar og stefnur sem byggðu á að brjóta upp gamlar reglur og hefðir, skapa list listarinnar vegna í stað þess að hún ætti að endurspegla raunveruleikann á einhvern hátt
Engin vitni voru að verknaðnum þegar styttan var sprengd og enginn lýsti verkinu á hendur sér til að byrja með. Nokkrum dögum síðar birtist yfirlýsing í Þjóðviljanum frá meintum geranda eða gerendum en sú yfirlýsing þykir hvorki skýr né afdráttarlaus. Margir hafa sett fram kenningar um hver beri ábyrgð á skemmdarverkinu og ýmsar kenningar hafa verið settar fram. Halla rekur þær í þáttunum og kemst að ákveðinni niðurstöðu. En hafi menn áhuga á íslenskri myndlist eru þessir þættir spennandi og frábærlega vel unnir.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







