Köllum kalla þessa lands út!

Köllum kalla þessa lands út er yfirskrift fréttatilkynningar frá Krabbameinsfélaginu til marks um að Mottumars er hafinn, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak tileinkað krabbameinum hjá körlum hefst í dag. Kallaútkall er yfirskrift átaksins í ár þar sem lögð er áhersla á forvarnargildi hreyfingar. Regluleg hreyfing dregur úr hættunni á krabbameinum, en allt of margir karlmenn hreyfa sig ekki nóg til að njóta þessara verndandi áhrifa. Það þarf ekki nema örfáar mínútur af hreyfingu á dag til að ná fram jákvæðum áhrifum. Öll hreyfing gerir gagn. Það þarf bara koma hjartanu aðeins af stað. Í átakinu er lögð áhersla á að virkja máttinn í samstöðunni og bróðerni karlmanna og hvetja þá til að nýta skriðþungann í Mottumars til að keyra sig og sína kalla í gang. Hér á eftir fer svo fréttatilkynningin en þar er að finna upplýsingar um viðburði, vörur og annað sem nálgast má vilji menn taka þátt og styrkja átakið með einhverjum hætti.

Mottumarshlaup á hlaupársdegi

Það er því mjög vel við hæfi að opnunarviðburður átaksins sé Mottumarshlaupið sem nú er haldið í fyrsta sinn í dag, 29. febrúar, á hlaupársdegi og ræst við Fagralund í Kópavogi. Boðið er upp á 5 km löglega mælda braut, með eða án tímatöku. Allir geta tekið þátt og farið á sínum hraða og jafnvel stytt sér leið, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Aðalatriðið er að vera með.

Hönnuðir sokkanna í ár eru AS WE GROW

Mottumarssokkarnir hafa fest sig rækilega í sessi og margir bíða í ofvæni á hverju ári eftir því að sjá sokka ársins. Sokkarnir í ár eru hannaðir hjá As We Grow. Þær Gréta Hlöðversdóttir, Snæfríð Þorsteins og Kamilla Henriau eru hugmyndasmiðirnir og hönnuðirnir á bakvið sokkana sem eru einstaklega fallegir. Hönnunin byggir á Mottumarsskegginu sem hefur tekið á sig abstrakt yfirbragð glaðlegs símynsturs í hinu hefðbundna litaþema átaksins. Símynstrið vísar í þá staðreynd að einn af hverjum þremur karlmönnum getur vænst þess að greinast einhvern tímann á lífsleiðinni með krabbamein.

Þegar við klæðumst sokkunum sýnum við ekki einungis stuðning í verki heldur minnum við hvert annað líka á hve málið er brýnt og varðar okkur einfaldlega öll.

Forsetinn fékk fyrsta parið

Sjöunda árið í röð fékk forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson fyrsta sokkaparið. Krabbameinsfélagið þakkar forsetanum fyrir að vera einn af fáum embættismönnum sem talað hefur af alvöru fyrir lýðheilsu og fyrir að hafa sýnt gott frumkvæði og fordæmi í gegnum árin í þeim efnum.

Nældu þér í par

Mottumarssokkana færðu í vefverslun Krabbameinsfélagsins, hjá As We Grow og á 400 sölustöðum um land allt.

Skeggkeppni Mottumars

Skeggkeppnin er á sínum stað og stendur til 31. mars. Það er því ekki eftir neinu að bíða, nema kannski skeggvextinum, skráðu þig til keppni. Skartaðu mottu og safnaðu áheitum með því að hvetja vini og vandamenn til að heita á þig og leggja góðu málefni lið.

Fjölbreytt fræðsla og viðburðir

Í Mottumars verða fjölbreyttir viðburðir og fræðsla í tengslum við karlmenn og krabbamein á döfinni hjá Krabbameinsfélaginu og aðildarfélögunum.

Stuðningur og velvild almennings skiptir máli

Árlega greinast að meðaltali 937 karlmenn með krabbamein. Í árslok 2022 voru 7.907 karlmenn á lífi sem greinst hafa með krabbamein. Starfsemi Krabbameinsfélagsins byggir alfarið á stuðningi frá einstaklingum og fyrirtækjum og Mottumars er ein af lykilstoðunum undir starfsemi félagsins.

Með stuðningi þínum gerir þú félaginu kleift að:

 

  • styðja fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra með ókeypis ráðgjöf hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa.
  • styrkja íslenskar krabbameinsrannsóknir sem snúa meðal annars að orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.
  • sinna ýmiss konar fræðslu, forvarnarstarfi, námskeiðshaldi og fleiru sem miðar að því að draga úr líkum á krabbameinum og bæta líf fólks með krabbamein.
  • sinna hagsmunagæslu og beita sér fyrir bættri aðstöðu fyrir fólk með krabbamein.

Starfsemi Krabbameinsfélagsins má kynna sér nánar á krabb.is.

Allar nánari upplýsingar um átakið má finna á Mottumars.is

Ritstjórn mars 2, 2024 07:00