2-3 grísarifjabitar
Snöggsjóðið grísarifin í 2-3 mín og leggið þau í kryddlöginn í 2-4 klst. Veltið rifjunum í leginum af og til. Grilið þau síðan á hefðbudninn hátt. Brið fram með t.d. bökuðum kartöflum, grillaðri papriku eða lauk og grilluðum aspars eða salati.
Kryddlögur:
1/2 bolli balsamic edik
1/2 bolli olía
2 msk. fersk basilblöð, söxðuð
1 tsk. nýmalaður, svartur pipar
1 msk. sítrónubörkur, rifinn
2 hvítlauksrif, marin
Blandið öllu saman og hrærið og leggið svínarifin í.