Veisla þrjú eftir Steinunni Sigurðardóttur er framhald af BÓL sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2023. Lífsneistinn hefur kviknað að nýju innra með Líneik Hjálmsdóttur eða LínLín eftir að ákveður að reyna að bjarga lambi fremur en að grafast undir hraunstraumi í Sælubóli.
Þessi bók er sannkölluð veisla, veisla lita, dásamlegra persóna, fagurra heimila og fólks sem leitar lífsfyllingar í því fagra í lífinu. LínLín hefur misst flest það sem gaf lífi hennar gildi, barnið sitt, stóru ástina í lífi sínu og sennilega hverfur sælustaðurinn hennar undir hraun en einhver neisti hefur kviknað innra með henni og nú er spurningin hvort hann nægi til að gefa lífi hennar tilgang að nýju. Hún endurnýjar kynnin við vini sína og Eyjó pabba en þar er allt breytt og LínLín þarf að ákveða hvernig hún tekst á við það. Þótt sumar breytingarnar séu ánægjulegar fylgir því alltaf ákveðin sorg að þurfa að endurmeta eitthvað sem var ákveðinn fasti í lífinu.
Líkt og í fyrri bókinni leikur LínLín sér með orð, orðatiltæki og skapar eigin orðaheim til að lýsa og gefa nafn öllu sem hefur gildi í umhverfi hennar. Þetta er skemmtileg venja og hjálpar henni að leiðsegja sig í gegnum lífið. Hún á einnig á takteinum ljóð fyrir hverja minningu, hvern viðburð og orðin ná alltaf að hugga. Og nú ríður á að skapa nýtt, byrja nýtt, endurfæðast. LínLín þarf að velja hvort hún verður áfram ein á báti eða hvort önnur manneskja fær að leggjast á árarnar með henni. Getur hún loks kvatt Hansa, ástina einu og sætt sig við að hann var aldrei hennar?
Steinunni tekst að lýsa hvernig nokkurs konar manía gagntekur LínLín eftir að hafa sloppið svo naumlega úr klóm dauðans. Hún svífur á þessu skýi til að byrja með þótt efinn sæki að af og til en augljóslega hefur hún ákveðið að hlúa að neistanum og næra hann svo hann verði að báli. Eitt af því sem heillar við allar bækur Steinunnar eru þau ótal blæbrigði tungumálsins sem hún bregður fyrir sig, hve lagið henni er að lýsa smáatriðum og bregða þannig upp skýrum myndum. Það er ekki alveg laust við að mann langi til að eignast íbúð Eyjó pabba á Ljósvallagötu, garðinn hennar LínLín og fataskápinn hennar. Þetta er litrík bók, full af von og lífsþorsta.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







