Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Landssambands eldri borgara hefur verið óþreytandi að hvetja eldri borgara til dáða nú á tímum Covid. Hún hefur nokkrum sinnum komið fram á fundum Almannavarna og þar hefur hún brýnt fólk að gefast ekki upp, en þriðja bylgja Covid, hafi tekið í hjá eldri borgunum. Hér eru rifjaðar upp leiðbeiningar sem hún hefur gefið eldra fólki og vitnað í fund almannavarna fyrir nokkru, þar sem Þórunn var gestur. Þær birtust á vef Landssambandsins leb.is og birtast hér fyrir neðan óbreyttar:
Þórunn skoraði jafnframt á eldra fólk að geyma þau erindi sem ekki skipta máli í bili. „Bara salta þau á blaði og eiga þau til góða þegar við förum að mega hreyfa okkur aðeins meira. En við megum ekki gleyma að fara út. Við megum ekki gleyma að fara og hreyfa okkur. Það skiptir alveg höfuðmáli.“
„Þessi stóri hópur, þessi 45.000 manna hópur rúmlega, sem er yfir sextugt, er sterkur hópur og duglegur. Hann er ótrúlega seigur og hann skiptir höfuðmáli í okkar samfélagi.
Og við þekkjum tímana tvenna. Margt af okkar fólki lifði af og lifði í kreppunni ’30 og ’31. Margir muna skömmtunarseðla. Þegar ég var barn man ég eftir skömmtunarseðlum og ég man að mamma beið í biðröð eftir að kaupa kjólefni. Við erum ekki í neinu slíku, þrátt fyrir kreppu. Við þurfum þess vegna að vera sterk og við verðum sterk – og ég ætlast til þess að fjölskyldur standi saman og hlúi að sínu fólki.“
Mikilvægt væri að fara út að hreyfa sig daglega og að oft væri líka hægt að hreyfa sig innanhúss. Þá sagði hún gott að horfa fram á við, til þess tíma þegar útbreiðsla veirunnar hefur róast. „Það er stutt í að íþróttahús opni aftur fyrir aldraða. Það er á dagskrá ÍR að opna nýtt íþróttahús svo eldra fólk geti gengið innanhúss þegar hálkan skellur á,“ sagði hún.
Þá hvatti hún eldri borgara til að hringja í sitt fólk og jafnvel gerast sjálfboðaliðar, til dæmis Símavinir. „Íslendingar eru eftirbátar Dana í því að eldra fólk sé sjálfboðaliðar. Við þurfum að vera virk í því að hjálpa öðrum,“ sagði hún, enda hefðu ótal rannsóknir sýnt fram á að það hefði góð áhrif á líðan. HÉR er tengill á símavinaverkefnið
Hún minnti fólk á kennsluhefti LEB – Landssambands eldri borgara um spjaldtölvur en hvatti fólk auk þess til að biðja barnabörn um hjálp. Þá minnti hún á mikilvægi þess að nærast vel og benti fólki á að forðast leiðinlegar fréttir stuttu fyrir svefn.
Daglegt líf
- Skipuleggja matarinnkaup.
- Fara með innkaupalista í búðina.
- Eða panta matvörur á netinu og fá sendar heim.
- Geyma erindi sem ekki liggur á.
Heilsa
- Nærast vel og borða hollan mat.
- Hreyfa sig daglega, úti eða inni.
- Nýta íþróttahús til hreyfingar þegar hálkan kemur.
- Gæta þess að fá nægan svefn.
Samskipti
- Hringja í fólkið sitt.
- Gerast sjálfboðaliði, t.d. símavinur.
- Nýta tæknina, t.d. spjaldtölvur til að komast í samband við fólk.