Í dag, 28. júní, var undirritaður samningur um Miðstöð í öldrunarfræðum sem sett verður á laggirnar og er það hluti af aðgerðaáætlun yfirvalda í málefnum eldra fólks, Gott að eldast, en markmið hennar er að upplýsingar um stöðu eldra fólks verði á einum stað til hagræðingar, að efla og þróa þjónustu við eldra fólk, nýsköpun og rannsóknir í málefnum aldraða. Verkefni Miðstöðvarinnar snýr að því síðastnefnda og hefur hún hlotið nafnið Miðstöð í öldrunarfræðum.
Miðstöð í öldrunafræðum verður ætlað m.a. að safna upplýsingum um aldraða og stöðu þeirra hér á landi. Aðgerðaráætlunin felur í sér 19 aðgerðir en við sumar þeirra hefur þegar verið hafist handa við og snýr ein af þeim að eflingu Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ).
Háskóli Íslands mun gegna meginhlutverki
Háskóli Íslands mun taka við keflinu sem leiðandi aðili af Landspítala, en rannsóknir munu spanna ýmiss svið sem tengjast öldruðum.
„Landspítali sinnir bæði mikilvægri þjónustu og vísindastarfi í þágu aldraðra og við höfum átt gott samstarf við Háskóla Íslands. Málaflokkurinn er mjög yfirgripsmikill og fjölþættur og þótt heilbrigðisþjónusta sé mikilvæg er hún langt í frá eini þátturinn sem hefur áhrif á lífsgæði og velsæld aldraðra. Leiðandi hlutverk Háskóla Íslands mun ýta undir aðkomu fleiri fræðasviða en sem fyrr með öflugri aðkomu Landspítala,“ segir Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, um verkefnið.
„Rannsóknastofa Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum hefur staðið fyrir öflugri rannsóknastarfsemi innan öldrunarlækninga og fræðslu um málefni sem tengjast öldrun síðastliðin 25 ár. Miðstöð í öldrunarfræðum tekur nú við þessari mikilvægu starfsemi og er það von Háskóla Íslands að starfsemin muni eflast enn frekar á komandi árum,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands en starfsemin mun ná til allra háskólastofnana á landinu „sem vinna að rannsóknum sem tengjast aðstæðum og líðan eldra fólks, auk heilbrigðisstofnana sem veita eldra fólki þjónustu. Jafnframt muni Miðstöð í öldrunarfræðum taka að sér söfnun og greiningu upplýsinga um stöðu eldra fólks,“ eins og segir í tilkynningu.
Þá er Miðstöð í öldrunarfræðum ætlað að vinna að eflingu nýsköpunar og þróunar í þjónustu við eldra fólk, m.a. í samstarfi við sveitarfélög og aðra þjónustuveitendur eftir því sem við á. Til að styðja við verkefnið verður undirritaður þjónustusamningur milli Miðstöðvar í öldrunarfræðum og heilbrigðisráðuneytisins. En einnig þjónustusamningur við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið vegna rannsókna og eftirfylgd með þróunarverkefnum um samþætta heimaþjónustu og önnur verkefni sem tengjast aðgerðaáætluninni Gott að eldast, eins og segir í tilkynningu.
Upplýsingar sem nýtast í betri þjónustu við aldraða
Nú þegar taka 22 sveitarfélög og sex heilbrigðisstofnanir þátt í þróunarverkefnum á vegum Gott að eldast sem sem lúta að því að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu í heimahúsum eldra fólks og verður upplýsingum safnað meðan á verkefnum stendur og við lok þeirra, en rannsóknir verða gerðar á framgangi og niðurstöðum verkefnanna. „Það á að vera gott að eldast og við viljum finna góðar lausnir þar sem við fléttum saman þá þætti heimaþjónustu sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin. Þróunarverkefnin sem farin eru af stað eru afar spennandi og viðamikil. Til að meta áhrif þeirra er mikilvægt að rannsaka og safna gögnum og Miðstöð í öldrunarfræðum mun þar gegna veigamiklu hlutverki,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og tekur heilbrigðisráðherra undir þau orð um mikilvægi hagnýtingu gagna til að geta veitt betri og skipulagðari þjónustu við aldraða.
„Meginmarkmiðið með aukinni gagnaöflun og nýtingu gagna er að efla þjónustuna og stuðla að þróun hennar, með tilliti til stefnumótunar, skipulags, vísinda og rannsókna, í þágu þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda,“ segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra.
Miðstöð öldrunarfræða er fagnaðarefni og standa vonir til að þar verði einnig haldið utan um niðurstöður úr könnunum, meðal annars um líðan og hagi eldra fólks.
Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna.