Stílíseraðar bollakökur

Bollakökur litu fyrst dagsins ljós á átjándu öld í Bandaríkjunum. Fyrsta uppskriftin birtist á prenti í bók Ameliu Simmons, American Cookery árið 1796. Kökurnar voru bakaðar í bollum, litlum skálum eða öðrum leirílátum sem þoldu ofnhita. Kökurnar komust í tísku í byrjun aldarinnar og vinsældirnar sprungu út þegar persónur þáttanna Sex and the City keyptu sér bollakökur í Magnolia Bakery í New York.

Orðið bollakökur var reyndar einnig notað lengi yfir kökur þar sem öll hráefnin voru mæld í bollum en í dag á það eingöngu við um litlar, fallegar kökur í smjörpappírsbollum fagurlega skreyttar smjörkremi. Einn helsti kostur bollakökunnar er hversu fljótleg hún. Eitt grunndeig getur nýst til að skapa margar bragðtegundir og litlar kökur í bolla eru mun fljótari að bakast en stórar tertur. Svo er hægt að skreyta þær á marga vegu og það sem fer ofan á þær sendir iðulega skilboð til gesta. Þannig er vinsælt að bera þær fram í veislum þar sem kyn barns er tilkynnt, stúdentshúfa er sett ofan á þær, fyrirtæki skreyta þær með lógóum sínum og svo má skreyta þær í íslensku fánalitunum á 17. júní.

Grunnuppskrift að bollakökum

1 1/2 bolli hveiti

1 1/2 tsk. lyftiduft

1/4 tsk. fínt salt

2 egg

2/3 bolli sykur

170 g brætt smjör

1/2 bolli mjólk

Aðferð

Blandið þurrefninum saman í skál. Þeytið saman eggin og sykurinn þar til ljóst og létt. Hellið þurrefnunum saman við og hrærið hægt. Hellið bráðnu smjörinu saman við hægt og hægt og svo að lokum mjólkinni. Bætið síðan í bragðefnum að eigin vali eftir því hvort þið kjósið vanillu-, súkkulaði-, sítrónu- eða möndlubollakökur.

2 tsk. vanilldropar

2 tsk. möndludropar

rifinn börkur af 1 sítrónu

2 msk. kakó

100 g brætt súkkulaði

Þegar þið hafið valið ykkar bragðefni er næsta skref að búa til smjörkrem til skreytingar.

Smjörkrem

1 ½ bolli smjör

2 bollar flórsykur

2 msk. mjólk

1 tsk. vanilludropar

Öllu blandað saman og hrært þar til blandan er kekkjalaus. Hér gildir síðan hið sama og áður þegar grunnuppskriftin hefur verið gerð er blandað saman við hana þeim bragðefnum sem þið kjósið og litað með matarlit eftir smekk. Smjörkremið er sett í sprautupoka og kökurnar skreyttar.

Margir kjósa einnig að nota rjómaost í kremið.

Rjómaostkrem

6 msk. rjómaostur

1/3 bolli smjör

1 ¾ bollar flórsykur

1 msk. rjómi

1 tsk. vanilludropar

Öllu blandað saman og hrært þar til blandan er kekkjalaus.

Súkkulaðikrem

2 ¾ bollar flórsykur

6 msk. kakó

6 msk. smjör

5 msk. mjólk

1 tsk. vanilludropar

Öllu blandað saman og hrært þar til blandan er kekkjalaus.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Ritstjórn júní 15, 2025 07:00