Tengdar greinar

Viltu synda hringinn í kringum Ísland?

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir landsátakinu Syndum sem stendur yfir  til 28.nóvember, ásamt Sundsambandi Íslands. Markmiðið er að hvetja almenning til að hreyfa sig með því að synda saman hringinn í kringum ísland. Landsmenn skrá sig og metrana em þeir synda á forsíðu www.syndum.is. Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt.

Þeir Andri Stefánsson, starfandi framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambandsins og Björn Sigurðsson formaður Sundsambandsins fluttu ávörp, þegar landsátakinu var hleypt formlega af stokkunum í dag, í Laugardalslaug í Reykjavík.

„Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna“, segir í fréttatilkynningu sem send var út.  Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni og líkamlegu ástandi. Sund er heilsubætandi og góð leið til að styrkja hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er jafnframt skemmtileg tómstundaiðja. Þetta átak er framhald af íþróttaviku Evrópu sem tókst einkar vel í ár. Markmið íþróttavikunnar var að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Til að taka þátt, þarf að skrá sig inná www.syndum.is og fara í „Mínar skráningar“. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá síðan sínar sundvegalengdir. Þeir sem eiga notendanafn í Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt von á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga.

 

Ritstjórn nóvember 2, 2021 21:01