Ekki tókst að manna allar stöður svo hægt yrði að hafa opið í öllum mötuneytum félagsstarfs velferðarsviðs Reykjavíkurborgar í sumar. Ekki tókst að manna þrjár félagsmiðstöðvar af sautján og verða þær því lokaðar í þrjár til fjórar vikur.
Lokað verður eftirfarandi félagsmiðstöðvum;
- Bólstaðarhlíð 43 lokar frá 17. Júlí til 8. ágúst.
- Sléttuvegi 11 lokar frá 10.júlí til 8. ágúst.
- Dalbraut 18-20 lokar frá 24. júlí til 8. ágúst.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að áhersla sé á að þeir sem ekki geti eldað geti fengið heimsendan mat. Aðrir sem gjarnan vilja fá hádegisverð á félagsmiðstöðvum er bent á þær 14 stöðvar sem eru opnar í allt sumar og sérstök athygli er vakin á mötuneytinu á Vitatorgi við Lindargötu 59 en þar er opið alla daga ársins.
Ef einhver þarf aðstoð vegna lokanna á ofantöldum stöðum varðandi hádegisverð eða akstur er viðkomandi bent á að hafa samband við þjónsutumiðstöð í sínu hverfi.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar starfrækir 17 félagsmiðstöðvar víðsvegar um borgina sem eru opnar Reykvíkingum á öllum aldri þar sem boðið er upp á hádegismat alla virka daga.