Sunnudaginn 29. júní vaknar þorpið til lífsins á Árbæjarsafni og gestir fá að kynnast fjölbreyttum störfum og daglegu lífi í þorpi fyrri tíma.
Gestir munu e.t.v. geta fylgst með saltfiskverkun og þvotti þvegnum á gamla mátann, sem og lyktað af nýbrenndum kaffibaunum.
Harmonikkuleikur ómar um þorpið og í Miðhúsi verður prentari.
Dillonshús Café verður opið og býður upp á ljúffengar veitingar í notalegu umhverfi.
Öll velkomin!