Er fullveldisdagurinn að gleymast?

Þeir sem eru komnir yfir miðjan aldur minnast þess að það var yfirleitt frí í skólanum 1. desember, sem var hátíðisdagur í þá daga. Dagurinn hefur hins vegar glatað ljóma sínum að mestu á seinni árum og er yfirleitt ekki haldinn hátíðlegur.  Árbæjarsafn minnist dagsins hins vegar í kvöld og verða íslenskir þjóðbúningar og þjóðdansar í öndvegi á safninu af því  tilefni. Heimilisiðnaðarfélag Íslands verður með kynningu á íslenskum þjóðbúningum og handverki sem tengist þeim. Þá munu félagar úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur kynna starf félagsins og taka sporið með gestum. Boðið verður uppá veitingar og aðgangur er ókeypis.

Á Wikipedíu segiir að fullveldisdagurinn sé svo nefndur til minningar um að þann 1.desember 1918, tóku Sambandslögin svokölluðu gildi, en lögin fjölluðu um það hvernig Ísland stóð að sambandi sínu við Danmörku. Í lögunum viðurkenndi Danmörk að Ísland væri fullvalda og frjálst ríki. Síðan segir Wikipedia:

Dagurinn varð smám saman að almennum þjóðhátíðardegi fram að lýðveldistíma og var íslenski fáninn dreginn að hún í fyrsta sinn sem fullgildur þjóðfáni þennan dag.

Lítið var samt um hátíðahöld þegar upp á hann var haldið í fyrsta sinn árið 1918, enda veturinn með eindæmum harður og oftast kallaður frostaveturinn mikli. Katla gaus einnig frá 12 október til 4.nóvember og seint í október barst drepsótt sú sem kölluð var spænska veikin til landsins og létust hundruð manna. Loks brast á nýtt kuldakast þegar veikin stóð sem hæst og ekki þótti ráðlegt að hafa langa útisamkomu við þessar aðstæður.

Háskólastúdentar hófu hátíðarhöld á fullveldisdaginn á fyrstu árum þriðja áratugarins og héldu tryggð við daginn þegar 17.júní tók við sem þjóðhátíðardagur eftir lýðveldisstofnun 1944 og héldu því áfram til ársins 1960.  Var upphaf þess fagnaðar það að árið 1921 minntust stúdentar þessa dags sem fæðingardags Eggerts Ólafssonar náttúrufræðings og skálds og hófu samhliða því söfnun fjár í minningarsjóð hans. Árið eftir, 1922 ákváðu stúdentar að halda 1. desember hátíðlegan sem þjóðminningardag og um leið hefja stórátak til fjársöfnunar fyrir byggingu stúdentagarðs.

Fyrir utan hátíðarhöld stúdenta var þó lítið um viðburði þennan dag að öllu jöfnu. Samkomur voru mjög fátíðar í sveitum enda árstíminn illa til þess fallin við húsakost og samgöngur millistríðsáranna. Samkomur voru því einna helst í kaupstöðum .

Dagsins var mest minnst í skólum og samkomur haldnar í héraðsskólum eftir að þeir tóku til starfa kringum 1930, segir í Wikipediu og þar segir einnig að víða hafi verið litið á daginn líkt og sunnudag og reynt að hafa aðalmáltíðina í samræmi við það. Eftir stofnun Ríkisútvarpsins árið 1930 hafi það yfirleitt haft hátíðardagskrá 1.desember.

Fullveldisdagurinn varð einn af opinberum fánadögum lýðveldisins með forsetatilskipun árið 1944.

 

Ritstjórn desember 1, 2022 07:00