100 ára stjörnur

David Attenborough fagnaði 100 ára afmæli sínu þann 8. maí síðastliðinn en hann er ekki eina stjarnan sem nær þeim áfanga í ár. Auk hans verður Mel Brooks 100 ára og Dick Van Dyke 101 árs. Sá fyrrnefndi 28. júní næstkomandi og sá síðarnefndi þann 15. desember í ár. Eva Marie Saint fagnar svo 102 ára afmæli þann 4. júlí.

Þessir þrír menn eiga fleira sameiginlegt en aldurinn. Þeir hafa allir mikla ástríðu fyrir því sem þeir gera og leggja sig alla í verkefnin. David Attenborough hefur síðastliðin 80 ár framleitt einstakar náttúrulífsmyndir og átt stóran þátt í að vekja áhuga almennings á náttúruvernd. Hann var einna fyrstur til að leitast við að vekja athygli á áhrifum mengunar og loftslagsbreytinga á lífið á jörðinni. Hann fæddist í Isleworth-hverfinu í London árið 1926 og hóf störf sem læringur hjá BBC árið 1952 og vann þar allan sinn starfsferil upp frá því. Meðal þátta sem hann kom að má nefna Zoo Quest frá 1954 og  Lífið á JörðinniBláa plánetan, Jörðin, Ísalönd og nú er verið að sýna Asíu á RÚV.

Í tilefni að afmælinu var ný heimildakvikmynd um störf hans, Making Life on Earth: Attenborough’s Greatest Adventure, frumsýnd á BBC og vísindamenn nefndu nýja tegund af vespu eftir honum. Reyndar er það ekki fyrsta skordýrið sem nefnt er í höfuðið á David Attenborough. Yfir 40 lífverur hafa fengið nafn hans, sumar lifandi á okkar dögum en aðrar fundist steingerðar. Aðdáendur náttúrufræðingsins söfnuðust saman á Trafalgar-torgi á kvöldið fyrir afmælisdaginn hans klæddir í gervi ljóna, tígrisdýra og býflugna, dönsuðu í kringum pappamynd af honum og sungu Africa og The Lion Sleeps Tonight. Fiðrildabúgarður í Stratford-upon-Avon hefur svo boðað að sleppt verði 100 Blue Morpho-fiðrildum út í náttúruna í ár honum til heiðurs.

Ekki eini tíræði snillingurinn

Mel Brooks heldur upp á tíræðisafmælið þann 28. júní. Þessi snillingur gamankvikmyndanna hefur sent frá sér nokkrar perlur sem þykja í senn klassískar og tímamótaverk. Þar má nefna The ProducersBlazing SaddlesYoung Frankenstein og Spaceballs. Gerður var söngleikur upp úr The Producers sem settur var upp á Broadway og sló í gegn þar og í London. HBO Max sjónvarpsstöðin sýndi í janúar í ár heimildakvikmynd um Mel og líf hans og Amazon MGM Studios er að vinna að framhaldi á Spaceballs.

Heldur lengra er í 101 ára afmæli Dick Van Dyke en það er ekki fyrr en í desember en engin ástæða til annars en að hlakka til að fagna því enda maðurinn bráðhress. Í fyrra dansaði hann og söng við hlið Chris Martin í myndbandi Coldplay við lagið All My Love. Hann mætir enn reglulega í spjallþætti og tekur þá gjarnan nokkur spor en dans er ástríða leikarans. Hann sló fyrst í gegn á Broadway en fékk síðan sinn eigin sjónvarpsþátt The Dick Van Dyke Show árið 1961. Í kjölfarið bauðst honum hlutverk sótarans Bert í Mary Poppins árið 1964 og Caractacus Potts í Chitty Chitty Bang Bang árið 1968. Þessar tvær dásamlegu myndir nægðu til að gera nafn hans og ímynd ódauðlega en hann lék í mörgum fleiri kvikmyndum og kom fram í ótal leikritum og sjónvarpsþáttum.

Í fyrra söng Dick Van Dyke og dansaði í myndbandi Coldplay.

Árið 1991 sneri hann aftur í sjónvarp í þáttaröðinni, Diagnosis Murder. Dick lék þar Dr. Mark Sloan, fyrrverandi herlækni sem tekinn er við starf yfirlæknis Community General Hospital í LA og ein og það væri ekki nóg hjálpaði hann lögreglunni í borginni reglulega að leysa morðmál. Þessir þættir voru svo vinsælir að þeir gengu í áratug á CBS-sjónvarpsstöðinni og enn fólk víst að sækja þá á streymisveitum.

Dick Van Dyke var 81 árs þegar hann lék í Night at the Museum árið 2006 og í framhaldsmyndinni Night at the Museum: Secret of the Tomb árið 2014. Í báðum myndunum sannaði hann að aldur er bara tala og eldra fólk er ekki síður lipurt í hreyfingu en þeir sem yngri eru. Hið sama átti við í endurgerð Mary Poppins árið 2018 en þar lék Dick Van Dyke bankamanninn Mr. Dawes jr.

Elsti Óskarsverðlaunahafinn

Eva Marie Saint verður 102 ára í júlí og elsti núlifandi Óskarsverðlaunahafinn. Hún hlaut Óskar fyrir leik sinn í On the Waterfront þar sem hún lék á móti Marlon Brando. Eva Marie nýtur mjög góðrar heilsu og sigraðist á brjóstakrabbameini árið 2000. Hún hreyfir sig mjög mikið og fer meðal annars í langa göngutúra á hverjum degi. Eva Marie naut mikillar velgengni bæði í kvikmyndum og í sjónvarpi og hún starfaði einnig við framleiðslu en dró sig að mestu í hlé árið 2014. Hún afhenti hins vegar Óskarinn fyrir búningahönnun árið 2018 þá 93 ára og árið 2021 tók hún þátt í hlaðvarpinu, The Pack Podcast, með Marisu Tomei.

Að lokum er vert að nefna að fleiri stjörnur hafa orðið langlífar. Kirk Douglas varð 103 ára Bob Hope 100 ára og Olivia de Haviland varð 104. Svo á hinn frægi þjóðvegur 66 í Bandaríkjunum aldarafmæli í ár og ansi margir ætla víst að taka rúnt um Route 66 að því tilefni.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.