Ó nei, föstudagurinn 13!

Ef þú ert í hópi þeirra sem forðast að ganga undir stiga, signir þig þegar svartur köttur hleypur yfir veginn og heldur þig helst innan dyra föstudaginn 13 einhvers tiltekins mánaðar er árið 2026 ekkert sérstaklega gott ár. Það eru nefnilega þrír föstudagar í ár sem ber upp á 13 dag mánaðarins.

Auðvitað er mjög misjafnt hversu alvarlega fólk tekur hjátrú af þessu tagi. Margir segjast ekki trúa en kjósa samt að banka í viðarborð og hafa yfir tölurnar 7,9,13 frekar en að taka sjénsa. Aðrir hlæja að þessu og enn aðrir viðurkenna fúslega að þeir signi sig ef þeir brjóta spegil og að þeir fari yfir götuna fremur en að ganga undir stiga. Sama hvaða hópi þú tilheyrir þá eru hér nokkrar skemmtilegar hugleiðingar um föstudaginn 13, happadaga og óhappadaga.

Af hverju talan 13 og föstudagar fengu á sig þann stimpil að boða ólán í vestrænni menningu er ekki vitað en trúin er aldagömul. Hryllingsmyndaframleiðandi nýtti sér það og gerð seríu kvikmynda undir heitinu, Föstudagurinn 13. eða Friday the 13th. En er það eitthvað óvenjulegt að föstudaga beri upp á 13 daga mánaðarins þrisvar sinnum? Já, það eru aðeins 12 mánuðir í árinu svo að flest ár eru bara einn eða tveir föstudagar númer 13. Í fyrra var til að mynda bara einn 13. júní var föstudagur. Á næsta ári 2027 verður líka bara einn, þ.e. 13. ágúst. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að tveir þessara föstudaga í ár eru liðnir föstudagurinn 13. febrúar og 13. mars. Engin stórvægileg óhöpp urðu á heimsvísu að minnsta kosti en föstudagurinn 13. nóvember er eftir.

En er föstudagurinn 13. raunverulega óhappadagur?

Í raun eru vísbendingar um að svo sé. Vísindalegar rannsóknir í nokkrum löndum sýna að ekki eru fleiri umferðarslys þennan dag en aðra daga og heimsóknum á sjúkrahús fjölgar ekki. Náttúruhamfarir eru ekki tíðari á föstudögum en öðrum dögum hvort sem þeir bera númerið 13 eða ekki og ýmislegt fleira hefur verið skoðað. En ef þú ert í hópi þeirra sem frekar vill tryggja þig gegn óhöppum en taka áhættuna er ættir þú að slá í tré og hafa yfir tölurnar 7,9,13 og kasta salti yfir hægri öxlina. Rannsókn sem birt var í the Journal of Experimental Psychology, sýndi nefnilega að þeim sem þetta gerðu leið betur en hinum á eftir jafnvel þótt þeir segðust ekki trúaðir á óhappadaga eða að hægt væri að tryggja sér vernd gegn þeim með þessu móti.

Það má líka benda á að þótt í flestum vestrænum ríkjum sé það föstudagurinn 13. sem vekur ótta þá er það ekki alls staðar svo. Á Ítalíu er föstudagurinn 17. sérlega varasamur og víða í Suður-Ameríku fimmtudagurinn 13.

Og fyrst við erum að ræða um hjátrú og hugsanlega óhappadaga er hægt að hvað stjörnurnar segja um árið í ár. Samkvæmt kínversku stjörnuspekinni er ár eldhestsins í ár. Það er ár breytinga, mikilla hreyfinga og hinu gamla verður skipt út fyrir eitthvað nýtt. Eldurinn brennir allt gamalt og úrelt og kraftmikið hrossið hleypur áfram í átt að nýjum markmiðum. Besti tíminn til að setja sér markmið fyrir næsta ár er hins vegar í nóvember og hugsanlega skynsamlegt að setjast niður föstudaginn 13. nóvember og strengja áramótaheitin fyrir 2027.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.