Pabbi og mamma fluttu nýlega í nýtt hús. Þau eru komin á nokkuð virðulegan aldur eða eru síðmiðaldra eins og pabbi segir. Þótt þau hafi átt fallegt einbýlishús fyrir fylgdi því lítil lóð sem var mest pallur að aftan og stétt að framan. Mamma var því alveg yfir sig hamingjusöm yfir því að fá stóran og góðan garð. Þau fluttu að hausti til og hún gat varla beðið eftir að voraði. Hún setti niður haustlauka í gríð og erg skömmu eftir að þau voru búin að koma sér fyrir og ég er ekki frá því að strax eftir áramót hafi hún verið farin að kíkja eftir því hvort upp væru komnir grænir sprotar.
Maðurinn sem seldi þeim húsið gaf þeim sláttuvél. Hún var gömul og frekar óhrjáleg að sjá en hann fullvissaði mömmu um að vélin væri í fullkomnu lagi og ekkert að því að slá með henni. Þetta gladdi mömmu enn meira því nú átti hún ögn meiri peninga til að kaupa önnur garðáhöld fyrir. Mamma arkaði milli járnvöruverslana og í gróðrarstöðvar allan veturinn og valdi klippur, klórur, sköfur, skóflur og hrífur. Oft dvaldist henni ansi lengi við búðarborðið því hún þurfti nauðsynlega að ræða við afgreiðslufólkið um hvernig nota ætti þessi ágætu tæki og tól.
Vorið nálgaðist og sól tók að hækka á lofti. Snjóa hafði varla leyst fyllilega þegar mamma var komin í garðinn til að tína rusl og huga að runnum og hríslum. Haustlaukarnir hennar skutu upp grænum sprotum og áður en nokkkurn varði logaði garðurinn allur í mikilli litadýrð. Túlipanar í öllum regnboganslitum, stórar og litlar páskaliljur, krókusar, rósalaukur, perluliljur og postlínsliljur. Mamma vissi nákvæmleg hver var hvað og brosti hreykin í hvert skipti sem einhver dáðist að garðinum hennar. Pabbi vesalingurinn var dúðaður í dúnúlpu og vopnaður klippum og sendur nauðugur viljugur út í garð að klippa um hverja einustu helgi.
Haustlaukar og sumarblóm
Mamma vildi einn runna klipptan í glæsilega kúlu, annan átti aðeins að særa lítillega ofan af og jafna hliðarnar og næstu runnaröð átti að klippa nánast niður í rót. Ég dáðist að elju konunnar við garðyrkjustörfin og á náttborðinu hennar lágu ótal bækur um garðyrkju sem ævinlega voru dreifðar um allt svefnherbergisgólfið á morgnanna. Ég var nokkuð viss um að garðurinn þeirra yrði verðlaunagarður sumarsins miðað við þá alúð og áhuga sem í hann yrði lögð. Runnar og tré tóku að bruma og blómstra, grasið að grænka og sumarblómatíminn var kominn áður en nokkurn varði.
Nú tóku við stjúpur, fjólur, betlehemsstjörnur og ótal tegundir fífla. Mamma var varla komin heim á kvöldin þegar hún var farin út í garð með blómabakka og byrjuð að hreinsa beð og planta sumarblómum. Fjölskyldan reitti saman afganga úr ískápnum og lifði á þeim því garðyrkjukonan hafði sjaldan tíma til að elda þegar hún kom loks inn úr garðinum á kvöldin. En öll þessi vinna skilaði sér garðurinn okkar var að verða einn sá glæsilegasti í götunni. Grillið var komið út, stólar og borð sömuleiðis og nú var ætlast til að við sætum löngum stundum í garðinum og lýstu aðdáun okkar á handverki mömmu. Ég get trúað ykkur fyrir því að grillmatur verður leiðigjarn til lengdar sérstaklega þegar maður er neyddur til að skófla honum í sig í mígandi rigningu meðan brosandi og bjartsýn kona berst við að fullvissa mann um að þetta sé aðeins smáskúr.
Okkur hinum í fjölskyldunni var nefnilega farið að finnast mamma heldur öfgafull í ást sinni á garðinum og áhuginn á garðyrkju hafði snarminnkað hjá öllum nema henni. Til allrar guðs lukku kom fyrir atvik sem dró heldur betur vindinn úr seglum mömmu og bjargaði fjölskyldunni frá hungurdauða því flestir voru búnir að missa allan áhuga á mat sem snæddur var utan dyra. Grasspretta var með ágætum þetta sumar og strax í byrjun júní var kominn tíma til að slá fyrsta slátt í garðinum. Um svipað leyti var pabbi sendur í viðskiptaferð til útlanda en mamma taldi það nú ekki eftir sér að slá grasblettinn og halda honum við.
Sláttur hefst í garðinum
Sólríkan sunnudag í rétt eftir hvítasunnu bretti mamma upp ermar dró fram sláttuvélina góðu og arkaði vígaleg út í garð. Þetta var bensínvél og eins og sönnum atvinnumanni sæmir athugaði mamma fyrst hvort ekki væri nægilegt eldsneyti á vélinni. Síðan hóf hún lífgunartilraunir, stillti á start og togaði snöggt og fast í þar til gert band sem snúa átti vélina í gang. Vélin hófst á loft við átökin en hvorki heyrðist frá henni hósti né stuna. Mamma reyndi aftur og allt fór á sama veg svo hún reyndi aftur og aftur og síðan enn aftur. Vélin sat þarna þögul og kyrr jafn dauð úr öllum æðum og risaeðlurnar. Móðir mín er betur þekkt fyrir margt annað en að gefast auðveldlega upp. Hún dró því djúpt andann og kippti enn á ný hraustlega í spottann. Vélin hófst á loft og dansaði eftir grasaflötinni en ekki heyrðist einu sinni hálfkæfð stuna né barst svo mikið sem örlítil reykjarslæða frá henni.
Mamma hnykklaði brúnirnar og setti hendur á mjaðmir. Með spekingsvip skoðaði hún vélina í krók og kring og potaði ábúðarfull í einhverja álkassa sem sátu ofan á vélinni. Ekki kom það að neinu gagni svo hún kallaði á bróður minn og bað hann að reyna að koma einhverju viti í tækið. Hann tölti út í garð og líkt og mamma neytti hann aflsmunar og rykkti af öllum kröftum í bandið. Aftur flaug sláttuvélin góða hátt á loft, lenti með látum á flötinni og skoppaði tvö máttleysisleg skopp afturábak áður en hún stóð aftur kyrr en mótorinn hreyfðist ekki.
Ég stakk upp á því að þau þyldu yfir kvikindinu nokkrar særingar úr Gráskinnu Galdra-Lofts en hvorugu þeirra þótti ég fyndin. Næst var gripið á það ráð að kalla til eiginmann frænku minnar sem var svo óheppinn að búa í næsta nágrenni og hafa asnast til að læra rafvirkjun meðan hann var enn ungur og óþroskaður. Auk þess hafði maðurinn farið á námskeið í skyndihjálp hjá Rauða krossinum. Mannvesalingurinn blandaði sér í hópinn þarna í garðinum og hóf lífgunartilraunir á sláttuvélinni. Hvort meistarapróf í rafvirkjun eða námskeiðin hjá Rauða krossinum gerðu útslagið er ómögulegt að segja en skyndilega hóstaði sláttuvélin, spýtti frá sér svörtum ógeðslegum reyk og hrökk í gang.
Líkamlegum refsingum beitt
Mamma varð eitt blíðubros og þakkaði manninum margfaldlega hjálpina. Hann skyldi svo bara fara heim og njóta þess sem eftir væri af sunnudeginum, hér eftir yrði hún einfær um verkið. Sláttuvélalæknirinn snjalli lét ekki segja sér það lengi og hvarf á braut jafnfljótt og reykurinn aftan úr vélinni góðu. Mamma greip hins vegar þéttingsfast um handfangið og renndi vélinni fagmannlega inn í kafgresið. Púst, hóst, kjökt og þögn, vélin drap á sér um leið. Enn upphófust rykkir og tog í bandið góða og eftir langa mæðu hrökk vélin í gang aftur. Aftur renndi mamma henni af stað og aftur drap hún á sér jafnskjótt og reynt var að hreyfa hana.
Móður minni var tekið að renna nokkuð í skap eftir þessi viðskipti það var auðséð á eldrauðu andliti hennar og þegar hún leit á tækið góða sem stóð rólegt og kyrrt fyrir framan hana brann eldur úr augum hennar. Það var brúnaþung kona með samanbitnar varir sem kippti í spottann í þetta sinn og þegar vélin hrökk í gang renndi mamma henni eins varlega og hægt af stað og hægt var. Í þetta sinna gekk vélin ágætlega fáeina metra og brúnin tók að lyftast á mömmu. En Adam var ekki lengi í Paradís. Enn einu sinni drap vélin á sér og svo aftur og aftur.
Ég og bróðir minn vorum hætt að fylgjast með viðskiptum þeirra vinkvennanna þarna í garðinum enda var þetta orðið nokkuð leiðigjarnar endurtekningar. Okkur brá því nokkuð þegar mamma birtist skyndilega sótbölvandi inn á miðju gólfi í stofunni, stappandi niður fótum og hreinlega hoppandi upp og niður í stjórnlausri reiði. Við skildum ekki almennilega það sem hún sagði en höfðum aldrei fyrr heyrt móður okkar, sem er skapstillingarkona, tvinna svo saman blótsyrðum. Eftir að hafa fengið þannig útrás fyrir erfiðustu tilfinningarnar snerist mamma snöggt á hæli, æddi fram í eldhús og sótti klaufhamarinn hans pabba. „Hvað ætlarðu að gera með hamarinn mamma mín,“ sagði bróðir minn blíðlega. „Ég ætla að berja þessa helv. vél,“ hvæsti mamma á móti. „Sláttuvélina?“ spurði bróðir minn og ég dáðist að hugrekki hans. „Þetta er ekki sláttuvél, þetta er vítisvél,“ argaði mamma og æddi út í garð.
Við systkinin hlupum að glugganum og horfðum undrandi á móður okkar, sem er ákafleg blíð og ljúf kona, keyra klaufhamarinn hvað eftir annað ofan í koll sláttuvélarinnar. Bróðir minn sá að við svo búið mátti ekki standa. Hann gekk út í garð tók blíðlega undir handlegg mömmu og leiddi hana inn. Hann sagði henni að setjast nú og fá sér kaffibolla hann skildi klára að slá. Sláttuvélin hefur sennilega lært sína lexíu á þessum aðgerðum mömmu því hún gekk hikstalaust þar til bróðir minn hafði lokið við að slá. Áhugi mömmu og eldmóður þegar kom að garðinum hafði hins vegar minnkað talsvert og þegar pabbi gaf henni nýja sláttuvél í jólagjöf í fyrra var hún ekki næstum eins kát og þegar hann gaf henni rafmagnsrunnaklippurnar.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna endursagði eftir frásögn lesanda.







