Læknislistir og klækir í Hvammasveit

Átjánda öldin á Íslandi, sárafátækt alls almennings, óréttlátt dómskerfi, ungbarnadauði algengur, meðallífaldur um það bil þrjátíu árum lægri en nú og ekkert heilbrigðiskerfi að leita til ef fólk veikist. Þessa veröld endurskapar Nanna Rögnvaldardóttir í bókunum um Bergþóru í Hvömmum og rannsóknir hennar á morðmálum. Nú er síðasta sagan komin út, Eitur í augum.

Að þessu sinni er morðgátan í bakgrunni sögunnar. Stærstur hluti bókarinnar snýst um samskipti fólksins í Hvömmum sín á milli og við nágranna sína, lækningaaðferðir átjándu aldar og þau úrræði sem buðust í erfiðum aðstæðum. Eyvör, fósturdóttir Bergþóru, er ófrísk eftir einnar nætur ævintýri með Birni lögmanni. Komist upp hver faðirinn er væri það álitshnekkir fyrir Bergþóru og hætta á að Björn beitti valdi sínu til að taka barnið af Eyvöru. Húsfreyjan í Hvömmum hefur ráð undir rifi hverju og ákveður að gifta stúlkuna systursyni sínum. Það reynist afdrifarík ákvörðun og Bergþóra kemst að því að hún er alls ekki eins meðvituð um líðan fólksins síns og hún hélt.

Þegar eiginmaður Eyvarar deyr af völdum eitrunar grunar Bergþóru strax að lát hans hafi ekki verið slys. Hún stendur einnig frammi fyrir erfiðu vali hvað framtíð hennar sjálfrar varðar og hver veit nema ástin hafi loks bankað upp á svefnhýsi húsfreyjunnar í Hvömmum.

Auglýsing

Þetta er einstaklega skemmtileg og spennandi bók, ein af þeim sem maður leggur ekki frá sér fyrr en maður veit hvar og með hverjum Bergþóra endar. Hún er heillandi sögupersóna, réttsýn, dugleg, ákveðin og kæn en á stundum hvatvís og stundum of stjórnsöm. Nanna kann þá list að skapa áhugaverðar og lifandi persónur. Alþýðufólkinu í Hvammasveit er sérstaklega skemmtilegt að kynnast og margir litríkir karakter í þeirri sveit.

En eitt það áhugaverðasta við þessar bækur er hve vel henni tekst að endurskapa andrúmsloft átjándu aldar og lýsa kjörum og aðstæðum fólks á þeim tíma. Nanna er fundvís á alls konar skringilegheit og sérkenni sem bæði einkenna fólk og tíðaranda þessa tíma. Textinn er fádæma vel unninn, blæbrigðaríkur, fallegur og oft einstaklega fyndinn. Það er ekki laust við að lesandinn finni til sorgar yfir því að þetta sé síðasta bókin um Bergþóru og sveitina hennar, í það minnsta á undirrituð eftir að sakna hennar og án efa hugga sig með því að lesa fyrri bækurnar aftur.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.