Einfarinn Odd Strange er ekki hræddur við myrkrið

Odd Strange ber nafn með rentu. Hann er ákaflega sérstakur maður með vel þjálfuð skilingavit og athyglisverða fortíð. Odd er aðalsöguhetjan í nýrri bók Jóns Atla Jónassonar, Dauðinn er bara myrkur. Þetta er hörkuspennandi bók, skemmtilega uppbyggð og með áhugaverðri hliðarsögu. Það er varla tilviljun að höfundur kýs að skíra persónu sína svo sérstæðu nafni og í því hljóta felast ákveðin skilaboð um hvers konar maður hann er.

Sagan gerist á þremur tímaskeiðum. Við kynnumst ungum dreng í Reykjavík á árunum 1980-1994.  Hann er lagður í einelti af skólafélögum sínum og elst upp við sérstakar aðstæður því foreldrar hans eru bæði blind og hann ekki hræddur við myrkrið. Þess á milli fáum við sögu  Odd Strange, á árunum 2007-2010. Hann á eiginkonu og barn og þau þurfa að takast á við efnahagshrunið á Íslandi. Odd er hálfnorskur og Inger, kona hans norsk, svo þau ákveða að byrja nýtt líf í Noregi. Þar kemur Inger að illa leiknu líki ungrar sómalskrar konur og þau hjónin fara að rannsaka dauða hennar því norska rannsóknarlögreglan virðist á algjörum villigötum. Að lokum hittum við Odd í óhrjálegu hjólhýsi á Spáni. Hann er illa farinn líkamlega og vinnur fyrir sér sem einkaspæjari. Helst virðist hann fá verkefni við að leita uppi horfin gæludýr en þá leitar til hans ung kona og biður hann að finna vinkonu sína sem ekki hefur skilað sér heim úr vinnu daginn áður. Odd felst á það og þá hefst atburðarás þar sem hann þarf á öllum sínum kröftum og þekkingu úr fortíðinni að halda.

Jón Atli er brjáðsnjall sakamálahöfundur og kann vel að byggja upp áhugaverðar persónur sem heilla lesendur. Honum er líka einkar lagið að búa til trúverðuga atburðarás og flétta spennandi söguþráð. Dauðinn er bara myrkur er ný fjöður í hattinn fyrir hann því hún er bæði frumleg og skemmtileg.

Auglýsing

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.