Síldarárin eru sveipuð ævintýraljóma í hugum margra Íslendinga. Sumir ólust beinlínis upp við sögur af fjörinu á síldarplaninu, uppgripum og vinnugleði þeirra sem tóku þátt í að veiða og koma silfri hafsins á markað. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur hefur skrifað skáldsögu sem gerist í þorpi á Íslandi einmitt í þessari stemningu. Haukur er vanari því að skrifa um fræðileg efni og þetta er hans fyrst skáldsaga.
Hvers vegna valdir þú þér síldarárin og þá ævintýralegu stemningu er ríkti í þorpum við margan fjörðinn á þeim tíma að sögusviði?
„Það var einmitt vegna þeirrar stemningar,“ segir Haukur. „Faðir minn brá búi vorið 1966 í Köldukinn í Suður-Þingeyjarsýslu. Fjölskyldan fluttist til Seyðisfjarðar til að græða í síldinni. Þá var ég tólf ára. Ég fékk strax vinnu sem póst- og símsendill og seldi líka blöð. Talið er að um fjögur þúsund aðkomumanna hafi þá verið í firðinum, en þetta varð síðasta stóra síldarárið. Ég hafði sjaldan farið að heiman frá bóndabænum í Kinninni og koman til Seyðisfjarðar varð mikið menningarsjokk fyrir mig og er eftirminnilegasti hluti ævi minnar. Það hefur búið í mér lengi að skrifa sögu sem gerðist í þessu umhverfi. Þetta voru umbrotaár, ungt fólk vildi breytingar og 68-kynslóððin var við það að gera sig gildandi í því efni.
Í sögunni reyni ég að gera umhverfið trúverðugt, enda þótt meginsagan sé skálduð. Þannig á sagan að gerast í raunverulegu umhverfi. Mér finnst þetta hafa tekist bærilega, því margir lesendur halda að sagan sé dagsönn.“
Kvenfélagsformaður veldur straumhvörfum
Aðalsöguhetjan er sendill á símstöðinni, eins og þú varst, og kemst ekki hjá því að fá að vita ýmislegt á undan öðrum þorpsbúum vegna þess. Þar koma líka ýmsir framámenn við sögu og undirtitill bókarinnar er: sagði formaður kvenfélagsins. Hvers vegna er slík áhrifakona í forgrunni eða er hún kannski aukapersóna?
„Formaður kvenfélagsins olli straumhvörfum í sögunni, hún tók sig taki, enda þótt væru jól, á aðfangadag klukkan fimm. Hún er í sjálfu sér aukapersóna, en hún er örlagavaldur fyrir ungu konurnar í sögunni. Aðalpersónurnar eru þrjár: Magga, sem er símritari á símstöðinni og söngkona staðarins, símsendillinn (sem líka er kallaður sveitastrákurinn) og Jóhannes, síldarmatsmaður að sunnan. Magga og Jóhannes voru svolítið að skoða hvort annað og símsendillinn heldur sögunni saman með samskiptum við þau bæði. Aukapersónur eru nokkrar.“
Mörður Árnason er einn þeirra er lásu yfir bókina áður en hún var gefin út. Voruð þið vinir?
„Já, við vorum vinir og með okkur ríkti gagnkvæm virðing. Við vorum samtíða í nokkur ár í ReykjavíkurAkademíunni. Ég var sískrifandi, ekki bara fræðibækurnar, sem hann las yfir, heldur skrifaði ég líka í blöð og félagsmiðla og við ræddum oft og mikið um málefnin sem ég setti fram. Hann lagði alltaf eitthvað málefnalegt til og við höfðum áhrif á skoðanir hvors annars. Það er mikill missir að Merði. Hann gat verið hrjúfur á yfirborðinu, en afskaplega trúr og tryggur þeim sem hann tók í sátt. Sennilega var hann viðkvæmari en framkoma hans bar vitni um,“ segir Haukur.
Frá stjónsýslu til skáldskapar
Margir þekkja vel skrif Hauks um stjórnsýslu en hann skrifaði meðal annars um þjóðaratkvæðagreiðsluna fyrr í sumar og hefur tjáð sig um þjóðaröryggismál. Þetta er þín fyrsta skáldsaga en áður hefur þú skrifað fræðigreinar. Ertu kominn á bragðið og eru fleiri slíkar í smíðum?
„Ég lofa engu um það. Það hvílir ekki önnur djúp reynsla á mér,“ segir Haukur og brosir. „Ég vann í sextán ár sem yfirmaður tölvu- og upplýsingamála á Alþingi og hef verið að máta mig við söguefni þaðan. En hef ekki fundið rétta flötinn á efninu. Það er svo mikilvægt að þykja vænt um og skilja sögupersónurnar og mig vantar það varðandi alþingismenn. Ég þoli ekki tvískinnung og tækifærismennsku. Ég vil að fólk sé gegnheilt og styðji sömu sjónarmið hvort heldur það er í meirihluta eða minnihluta. En maður verður víst að sætta sig við að stjórnmál eru kvikmynd „leikin af stjörnum – myndin er ekki ætluð börnum“, eins og Kristján frá Djúpalæk orðaði það og átti þá við lífið almennt.“
Haukur gefur bókina út sjálfur en það er leið sem margir höfundar fara nú orðið. Bæði vegna þess að það er mun auðveldara en áður og menn vilja stjórna sjálfir hvernig markaðssetningu og öðru er farið með bækurnar. Hvers vegna kaust þú að fara þá leið?
„Já, ég gef bókina út sjálfur. Ég fékk ekki útgefanda og hafði reynslu af útgáfu þannig að þetta reyndist mér ekki erfitt. Þegar maður hefur skrifað skáldsögu sem maður trúir á og yfirlesarar hæla – þá er ekkert annað að gera en að koma henni frá sér. Koma henni út í heiminn og sjá til hvernig henni vegnar. Ég naut aðstoðar afskaplega hæfs fólks við útgáfuna; kápan er hönnuð af Dagnýju Reykjalín, myndlistarhönnuði á Akureyri, Þorvaldur Kristinsson ritstýrði bókinni og Mörður Árnason las hana yfir. Ég hef ekki enn fundið stafsetningar- eða málvinnu í bókinni!! En sjáum til. Ég held að hún sé skrifuð á góðri þingeysku,“ segir Haukur Arnþórsson að lokum en bók hans um ástir og örlög fólks á síldarárunum heitir Jól eða ekki jól … sagði formaður kvenfélagsins og er fáanleg hjá Pennanum-Eymundssyni og á vefsíðu höfundar, haukura.is/solusida (þegar kerfin hjá 1984 komast í lag).







