Ávarp til Alþingis frá Þingeyrarakademíunni

Ágætu alþingismenn.

Þingeyrarakademían biður ykkur að minnka þetta endalausa röfl úr ræðustól þingsins daginn út og daginn inn. Ef þið gerið það, þá hlustið þið betur hvert á annað. Við kjósum ykkur ekkert frekar þó þið látið svona! Gefið svo símanum frí í þingsalnum. Hættið að rífast en snúið ykkur með oddi og egg að þeim vandamálum sem þið eruð kosin til að leysa. Forgangsraðið fjárveitingum. Þeir sem nóg hafa þurfa ekki meira. Gerið meira en að hugsa til þeirra sem minna mega sín. Munið að þið eigið að móta stefnuna fyrir þjóðina. Ef hún er skynsamleg fylgir þjóðin ykkur. Annars fer hún út og suður. Takið lagið einstaka sinnum til að styrkja móralinn, til dæmis Öxar við ána eða Fyrr var oft í koti kátt. Vestfirðingurinn Jón Sigurðsson fylgist með ykkur daglega. Ekki amalegt að hafa hann sem fyrirmynd. Hann var bæði kurteis, þinglegur og yfirvegaður við alla. Ekki síst Dani. Hann vann sleitulaust og lagði áherslu á að menn lærðu af sögunni. Mörg stórmenni veraldarsögunnar hafa hamrað á því að ekkert er nýtt undir sólinni!

 Hvað er Þingeyrarakademían? Þingeyrarakademían er stór hópur manna sem stundar morgunsund og heita pottinn á Þingeyri. Þar eru ýmiskonar innanlands- og heimsvandamál rædd og jafnvel leyst. Þingeyrarakademían kemur til dyranna eins og hún er klædd.

Greinin birtist í nýjasta tölublaði Vesfjarða. Slóðin inn á blaðið er hér.

Ritstjórn september 25, 2017 10:36