Bættur hagur eldri kvenna og sparifjáreigenda

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, fyrrverandi formaður Landsambands eldri borgara segir í grein í Fréttablaðinu að frumvarp félagsmálaráðherra, verði það að lögum, einfaldi allt almannatryggingarkerfið. Það feli í sér sveigjanleika í lífeyristöku.

„Sameina á grunnlífeyri, tekjutryggingu og framfærsluuppbót í einn ellilífeyri. Framfærsluuppbótin sem hefur verið með 100% skerðingu gagnvart öllum öðrum tekjum verður færð í flokk ellilífeyris þar sem skerðingin verður 45%. Það er stór ávinningur að ná því að þessi uppbót á lífeyri renni nú inn í almennan ellilífeyri,“ segir Jóna Valgerður.

„Hægt verður að byrja að taka ellilífeyri 65 ára, en einnig að geyma það til 80 ára. En jafnframt verður líka hægt á þessu 15 ára tímabili að taka ½ lífeyri hjá bæði lífeyrissjóðum og almannatryggingum og geyma hinn helminginn til allt að 80 ára aldurs, og hækkar þá geymdi lífeyririnn samkvæmt tryggingarfræðilegu mati þangað til viðkomandi tekur fullan lífeyri. Þetta ákvæði þarf þó undirbúningstíma og mun ekki taka gildi fyrr en ári seinna en aðrar breytingar sem lagðar eru til,“ segir hún ennfremur.

„Taki fólk hálfan lífeyri getur það haldið áfram að vinna án skerðingar vegna vinnulauna. Það ætti því að hvetja fólk til atvinnuþátttöku eftir getu og vilja hvers og eins. Með hækkandi meðalaldri þjóðarinnar hefur verið krafa um meiri sveigjanleika til bæði lífeyristöku og lengri starfsævi. Þá er einnig verið með þessum breytingum að hækka lífeyristökualdur úr 67 árum í 70 ár á 24 árum.“

„Kostnaður ríkissjóðs af þessu frumvarpi verði það að lögum fer að miklum hluta til að bæta hag eldri kvenna, sem hafa verið í meirihluta þeirra sem hafa haft framfærsluuppbótina og lítið í lífeyrissjóði. Þetta eru oftast konur sem voru heimavinnandi fram eftir aldri, sinntu heimili og mörgum börnum, en fóru svo að vinna seinna utan heimilis og oft í láglaunastörfum. Jafnframt bætir þetta hag þeirra sem eiga sparifé þar sem skerðingarprósenta vegna vaxtatekna fer einnig í 45%, en frá Hruninu hefur það verið föst fjárhæð eða rúmar 98.000 kr á ári,“ segir Jóna Valgerður.  Greinina í heild er hægt að lesa hér.

Ritstjórn júlí 7, 2016 09:31