Er hægt að vinna upp glataðan svefn?

Margir búa við síendurteknar svefntruflanir eða varanlegt svefnleysi. Menn reyna oft að bæta sér upp lítinn svefn með því að leggja sig yfir daginn en finna þá að erfiðlega gengur að sofna á kvöldin. Þá skapast vítahringur og manneskjunni finnst hún aldrei ná fullri hvíld. En hvað er til ráða? Er hægt að vinna upp glataðan svefn?

Já, að einhverju leyti er það hægt en best er auðvitað alltaf að ná samfelldum svefni yfir nóttina. Svefntruflanir eru af ýmsum toga. Sumir eiga erfitt með að sofna, aðrir vakna við minnsta hljóð og vaka þá einhverja klukkutíma í senn og enn aðrir glíma við að sofna alls ekki fyrr, vaka heilu og hálfu næturnar og líða svo út af í algjörri örmögnun einhvern tíma yfir daginn.

Að taka sér hádegislúr eða eftirmiðdagsdúr getur að einhverju leyti bætt upp svefntap næturinnar. Lúrinn verður hins vegar alltaf styttri en sá svefn en þær svefnstundir sem manneskjan missti um nóttina. Stuttir dúrar hjálpa hins vegar til að halda fólki gangandi yfir daginn og hjálpa því að finna næga orku til að geta sinn því sem það þarf að sinna. En það er erfitt að vakna aldrei úthvíldur að morgni og finna sig tilbúinn til að takast á við daginn.

Enn eru skiptar skoðanir á því meðal sérfræðinga í svefni og þeirra sem rannsaka svefn hvort það sé æskilegt að leggja sig yfir daginn og hvort stuttir lúrar geti hjálpað þeim sem glíma við svefnvanda. Sumir telja að týndar svefnstundir frá fyrri dögum verði aldrei bættar með meiri svefni daginn eftir. Mun líklegra sé að með því að sofa meira á daginn sé fólk eingöngu að skapa áframhaldandi truflun á nætursvefninum og glataður svefn sé að eilífu glataður. Aðrir telja að betra sé að fá einhverja hvíld og gera líkamanum þannig kleift að halda áfram.

En ástæðan þess að fólki líður miklu betur eftir langan hádegislúr er sú að hann er nógu langur og djúpur til að viðkomandi nái djúpsvefnfasa og líkaminn nái því að hvílast. Niðurstöður norskrar svefnrannsóknar frá árinu 2018 staðfesti að svo væri. Hún sýndi að ef manneskja fær of lítinn svefn á virkum dögum getur það að ná svolitlum aukasvefni um helgar haft jákvæð áhrif á heilsuna.