Fékk frásagnargáfuna í arf

Hin frábæra breska leikkona Brenda Blethyn sendi frá sér ævisögu sína, Mixed Fancies árið 2007. Brenda á áhugaverðan feril að baki og er sönnun þess að ekki allt þarf að gerast fyrir þrítugt. Hún er ein níu systkini og bjó ekki við mikil efni í uppvextinum. Giftist ung og skildi 27 ára og þá ákvað hún að láta leiklistardrauminn rætast.

Í bókinni talar hún að fjölskyldan hafi búið við lítil efni en þau hafi samt sem áður verið rík. Foreldrar hennar hafi kennt þeim systkinunum að gera greinarmun á réttu og röngu og kímni hafi verið í hávegum höfð. Húmor hjálpi fólki nefnilega að takast á við flesta hluti. Foreldrar hennar voru líflegt og skemmtilegt fólk. Bæði þó með sína galla. William Charles Bottle, faðir hennar, var rólyndismaður almennt en móðir Brendu, Louise Kathleen, stjórnaði heimilinu og hann ánægður með það en af og til sauð upp úr.

Louise var 42 ára þegar Brenda fæddist og leikkonan hefur sagt að líkt og venjulega hafi hún þá mætt á síðustu stundu. Brenda fæddist með einn auka fingur á annarri hendi, eins og Anne Boleyn önnur eiginkona Hinriks VIII, sú hjátrú lá á í þá daga að konur með þann fæðingagalla væru nornir. Í tilfelli Anne fylgdu þessu því ýmis vandamál en Brenda vissi lítið af því vegna þess að fingurinn var tekinn af meðan hún var enn ungbarn.

Brenda með foreldrum sínum, Louise og William.

Brotnaði niður þegar eiginmaðurinn fór

Auglýsing

Hún ólst síðan upp í samhentri og hamingjusamri fjölskyldu. Bræður hennar voru ákaflega umhyggjusamir gagnvart henni og verndandi. Brenda segir að það hafi gert það að verkum að hún hafi verið ákaflega saklaus í kynferðismálum þegar hún kynntist og féll fyrir Alan Blethyn aðeins átján ára. Þau giftust þegar hún var nítján en hann varð ástfangin af annarri og fór frá Brendu eftir níu ára hjónaband. Hún var gersamlega brotin lengi á eftir en hefur ævinlega talað vel um þennan fyrri mann sinn í fjölmiðlum. En vegna þess hve gott hjónaband foreldra hennar var vildi hún ekki strax að segja þeim frá skilnaðnum. Fyrst ákvað hún að sanna fyrir sjálfri sér og öðrum að hún gæti tekist á við lífið ein.

Í hlutverki Veru Stanhope.

Um þær mundir vann hún sem einkaritari hjá British Rail. Það var raunar þar sem hún hafði kynnst Alan en hún hafði alltaf átt sér þann draum að verða leikkona og þegar líf hennar var hvort sem er allt í uppnámi fannst henni tímabært að láta reyna á að láta hann rætast. Hún fór í inntökupróf í Guildford School of Acting og komst inn. Eftir að námi lauk fékk hún starf í The National Theatre. Henni bauðst svo hlutverk í kvikmynd Mike Leigh, Secrets and Lies árið 1996 og hlaut Óskarverðlaun fyrir frammistöðu sína. Síðan þá hefur Brenda leikið nánast eingöngu í kvikmyndum.

Margir muna eftir henni úr Little Voice, Saving Grace, A Way of Life og Atonement. Íslenskir sjónvarpsáhorfendur þekkja hana hins vegar best í hlutverki Veru Stanhope, lögregluforingjans snjalla í Northumberland. Nýlega nutu þeir líka hæfileika hennar í þáttunum A Woman of Substance sem gerðir eru eftir skáldsögu Barböru Taylor Bradford. Eldri þættir eftir sömu sögu með Jenny Seagrove í sama hlutverki voru sýndir í sjónvarpinu á áttunda áratug síðustu aldar.

Með eiginmanni sínum Michael Mayhew.

Gott að alast upp í stórri fjölskyldu

Brenda segist fullviss um að það hjálpi fólki í leiklistarbransanum og öðrum skemmtanaiðnaði að vera úr stórri fjölskyldu. Leikarar þurfi að vinna með nýju og nýju fólki og hvert verkefni sé nýtt. Þá sé gott að vera vanur að þurfa að laga sig að þörfum annarra, umgangast ólíka persónuleika og hafa tekist á við alls konar uppákomur og árekstra í samskiptum. Og þetta virðist vera rétt því hún er þekkt fyrir að vera lipur í samstarfi og að koma vel saman við alla sem hún vinnur með.

Einn kafli ævisögunnar heitir, Losing Dad, Finding Mum. Þar segir Brenda frá því hvernig hún kynntist móður sinni upp á nýtt eftir að faðir hennar dó árið 1985. Þær urðu upp frá því nánar vinkonur. Mamma hennar sagði henni frá trúlofun sinni og Williams en þau voru trúlofuð í tuttugu ár og gift í fjörutíu. Ástæðan fyrir langri trúlofun var sú að Louise vann sem vinnukona á heimilum efnaðs fólks og seinna sem skúringakona og þau höfðu ekki efni á að giftast. Þau kynntust reyndar þegar bæði unnu á sama heimilinu, hún vinnukona og hann bílstjóri.

Í hlutverki Emmu í A Woman of Substance.

Ástarsaga eins og klippt út úr Downton Abbey. William var lærður bifvélavirki og vann við það síðar á ævinni. Þau hjónin voru bæði íhaldssöm og kusu Tory-flokkinn en Brenda fylgir verkamannaflokknum að málum og í bókinni talar hún um að hún hafi aldrei skilið stéttskiptingu og virðingarröð innan fyrirtækja. Faðir hennar hafi ávarpað ólíklegasta fólk Sir, þegar hann heilsaði en dóttir hans skildi ekki þörfina fyrir slíkt. Rétt eins og sama kynslóð fólks hér á landi skildi ekki þörfina fyrir þéringar og lagði þær af.

En að mati Brendu hafði mamma hennar frábæra frásagnargáfu og unun að hlusta sögur hennar af lífi þeirra hjóna. Sú gáfa hefur án gengið í erfðir til dóttur hennar því það þarf tilfinningu fyrir góðri sögu og framvindu frásagnar til að vera góður leikari. Brenda Blethyn er í dag gift Michael Mayhew en þau búa ekki saman. Bæði eru mjög ánægð með það fyrirkomulag. Þau voru trúlofuð í 35 ár áður en þau giftu sig svo langar trúlofanir ganga einnig í erfðir í þessari fjölskyldu. Brenda segir Michael vera hlýjan mann og heiðarlegan og kunni vel að meta að hann segi henni eins og er fremur en það sem hún vilji heyra. Brenda á engin börn en er í góðu sambandi við systkinabörn sín, þar á Kelly Scott en hún hefur fetað í fótspor frænku sinnar á leiklistarbrautinni og lék eitt sinn á móti henni í Veru-þætti.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.