Golf er ein vinsælasta íþrótt heims og ungir jafnt sem aldnir arka daglega út á golfvöll til að slá kúlur í þeirri von að þær endi í þar til gerðum holum. Fyrir þá sem vita ekkert um golf er ágætt að útskýra að það er íþrótt þar sem keppandinn notar nokkrar tegundir af kylfum til að slá kúlu ofan í holu á manngerðum velli og allt snýst um að gera það í eins fáum höggum og mögulegt er.
Þetta hljómar kannski ekki flókið en er erfiðara í að komast en um að tala. Golfleikarar vilja meina að mikla tækni og þjálfun þurfi til og byrjendur reka sig sömuleiðis gjarnan á að ekki er allt sem sýnist varðandi það að hitta kúluna, koma henni á flug og raunar ofan í blessaða holuna. Það vill líka oft vera þannig að þegar reglurnar eru einfaldar getur reynst ansi flókið að leika eftir þeim. Golf er auk þess mjög sérstök íþrótt að því leyti að vellirnir eru ekki staðlaðir eða eins heldur leggja menn sig fram um að gera þá eins fjölbreytilega og hægt er þannig að golfleikarinn er alltaf að reyna eitthvað nýtt.
Fyrstu heimildirnar um golf koma frá Skotlandi – nánar tiltekið Edinborg – og eru frá árinu 145u en það var bann við að spila golf og fótbolta. Skotar höfðu þá verið að leika þessa leiki um langa hríð á götum úti og í kirkjugörðum. James II konungur hafði áhyggjur af því að þessir leikir kæmu í veg fyrir að menn æfðu bogfimi, eins og þeir voru skyldugur til, svo þeir væru hæfir til að sinna herskyldu. Hann lagði þess vegna fyrir þing Skota frumvarp til að banna þessa leiki.
Konur alls ekki útlokaðar
Sú flökkusaga fór á kreik um að orðið „golf“ væri í raun skammstöfun fyrir ,,Gentlemen Only Ladies Forbidden”. Hún gekk manna á milli í nokkra áratugi en á ekki við rök að styðjast. Margar konur hafa frá upphafi stundað þessa ágætu íþrótt. Það er talið að orðið „golf“ komi frá orðinu „kolf“ sem þýddi kylfa á skosku og Íslendingar sjá án efa tenginguna við okkar orð kólfur. Mjög mörg fornnorræn orð hafa varðveist í skosku en smám saman þróaðist orðið og aðlagaðist enskri tungu varð að því sem við þekkjum í dag.
En það er ekki eina þróunin sem hefur orðið í golfinu: Til að byrja með voru golfarar þekktir fyrir að ganga mikið á milli þess sem þeir slógu kúluna og höfðu þá með sér svokallaða „caddie“ sem báru kylfurnar fyrir þá. Í dag finnst golfurum hins vegar gott að setjast í sérhannaða golfbíla og bruna á milli staða. Samkvæmt nýlegri talningu eru 38.864 golfvellir í heiminum og um það bil helmingur þeirra í Bandaríkjunum. Þá er talið að Bandaríkjamenn eyði meira en 600 milljón dölum í golfkúlur á ári hverju sem verður að teljast nokkuð góð upphæð.
Æðsta markmið hins metnaðarfulla golfara er svo auðvitað að ná holu í höggi. Fyrsta skjalfesta atvikið af því taginu gerðist árið 1868 þegar Tom Morris náði sinni áttundu holu í einu höggi. Hann vann mótið. Yngsti golfarinn til að ná holu í höggi var Coby nokkur Orr sem var fimm ára þegar hann mundaði kylfuna. Þetta gerðist í Colorado árið 1975. Margir af þeim sem ákveða að leggja golfið fyrir sig verða hreint út sagt háðir því. Besta dæmið um það er kannski sú staðreynd að golf er eina íþróttin sem hefur verið spiluð á tunglinu. Sjötta febrúar 1971 ákvað geimfarinn Alan Shepard að fyrst hann væri nú kominn á tunglið væri gráupplagt að skjóta svo sem eins og tveimur golfkúlum eitthvert út í buskann. Enginn virtist hafa neitt við það að athuga og því klöngraðist Shepard út úr Appollo 14-geimfarinu greip kylfuna og sló kúlu út í geiminn. Auðvitað! Hvað annað?
Mínígolf er líka sport
Á síðustu árum hefur golfíþróttin þróast og er nú til angi af henni sem kallast minigolf. Aðalmunurinn á venjulegu golfi og minigolfi er sá að í stað þess að keppt sé á opnum velli er hver hola með ákveðna „braut“, hún er afmörkuð og á henni iðulega búið að koma fyrir alls kyns hlutum sem aldrei myndu fyrirfinnast á venjulegum golfvelli; trékubbum, litlum vindmyllum og hellumsvo fáein dæmi séu nefnd. Nákvæmni er aðalatriðið í minigolfi, enda holan aldrei langt í burtu; það er bara mjög erfitt að komast að henni. Sumir vilja meina að minigolf sé ekki íþrótt, ekki frekar en tafl, pílukast og skyrglíma. Minigolfarar láta það þó sem vind um eyru þjóta og er Evrópumótið í minogolfi besta dæmið um það.
Hér á landi eru ófáir dyggir aðdáendur íþróttarinnar og skilyrði til að leika golf hér á sumrin einstök. Ferðamenn flykkjast hvaðanæva að úr heiminum til að geta spilað golf í miðnætursól sem við tökum sem sjálfsögðum hlut en er upplifun fyrir þá. Fjölmargir golfvelli er sömuleiðis að finna á íðilfögrum stöðu og sumir vilja meina að íslensk náttúra sé hvergi fegurri en séð frá gríni á golfvelli.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







