Tengdar greinar

Hreinlæti í eldhúsinu forðar matarsýkingum

Það kennir ýmissa grasa á vefnum Heilsuveru sem er mjög gagnlegur vefur, þegar kemur að öllu heilbrigði. Þar er meðal annars að finna heilræði um meðferð matvæla og hreinlæti í eldhúsinu í kringum mat. Það er sagt skipta miklu þegar að því kemur að forða fjölskyldunni frá matarsýkingum.  Heilræðin má sjá hérna fyrir neðan.

  • Þvo hendur alltaf vel áður en matreiðsla hefst.
  • Þvo hendur eftir að hafa meðhöndlað hrá matvæli.
  • Nota ekki hráefni ef vafi leikur á að það sé heilt.
  • Skola allt grænmeti og ávexti með rennandi köldu vatni fyrir notkun.
  • Þíða matvæli í ílátum sem koma í veg fyrir að vökvinn sem lekur úr þeim berist yfir í önnur matvæli.
  • Láta matvæli þiðna í ísskáp frekar en stofuhita. Ef matvæli eru þídd í örbylgjuofni þarf að matreiða þau strax að þiðnun lokinni.
  • Halda hráum matvælum frá soðnum. Örverur í hráum matvælum geta borist yfir í þau soðnu, fjölgað sér þar og valdið matarsýkingum.
  • Þvo skurðarbretti, hnífa og önnur áhöld á milli hráefna. Ef sami hnífur er notaður til að skera kjöt og grænmeti þarf að þvo hann á milli.
  • Matarafganga er gott að nýta en þá þarf að setja í kæli strax að máltíð lokinni.
  • Halda eldhúsi hreinu og skipta um borðtusku og viskastykki reglulega. Þar sem notkun er mikil þarf að skipta daglega en sjaldnar þar sem notkun er lítil. Uppþvottabursta er gott að setja í uppþvottavél sé hún til staðar eða þvo þá úr sjóðandi vatni og sápu reglulega.
  • Gæludýrum á ekki að leyfa að ganga á borðum í eldhúsinu.
Ritstjórn ágúst 10, 2023 07:00