Litlar perlur um stóra hluti; fyndnar, sorglegar og sætar

Mæðrun er dásamlegt safn smásagna eftir Auði Önnu Magnúsdóttur. Þetta eru vel skrifaðar og sérlega vel heppnaðar sögur. Smásagnaformið er ákaflega krefjandi því það krefst þess að höfundur hafi á valdi sínu að skapa hnitmiðaðan heildstæðan heim sem lesandinn trúir á og heillast af. Auði tekst það einkar vel.

Allir vita að það er ekki einfalt að vera mamma, sérstaklega þegar kröfur, væntingar og mýtur þvælast fyrir. Hér fáum við átakanlegar sögur, skemmtilegar, dásamlega kaldhæðnar og óvenjulegar. Höfundur nýtir sér fjölbreytt stílbrögð og lýsir augnabliki eða stuttri stund í lífi karakteranna en þetta augnablik líkt og ljósmyndin gefur oft mynd af heilli ævi og skýra mynd af margbrotnum persónuleika. Hver saga endurspeglar heim í hnotskurn og fangar ímyndunarafl lesandans af krafti. Ég stóð mig að því að semja í huganum framhald af mörgum af þessum sögum. Stundum vegna þess að ég hafði samúð með persónunni, stundum vegna þess að ég vildi óska að einmitt svona fyrirbæri væru raunveruleg og stundum vegna þess að þetta var svo skemmtilegt að ég gat ekki sagt skilið við söguna alveg strax.

Hér er verið að leika sér með staðalmyndir, hugmyndir og væntingar okkar til mæðra og móðurhlutverksins. Það er margslungið og ekki alltaf einfalt og höfundur minnir okkur hressilega á að bilið milli vona, væntinga og raunveruleikans er oft óbrúanleg helvítisgjá. Að lokum er vert að nefna að Auður hefur einkar skemmtilegan kaldhæðinn húmor og kann vel að fara með þess konar gamansemi. Það er óhætt að mæla með því að hafa þetta smásagnasafn lengi á náttborðinu til að grípa í þegar þarf að minna sig á að lífið getur verið flókið en dásamlegt og líka þegar maður þarf að hlæja hressilega.

Auglýsing

Höfundurinn Auður Önnu Magnúsdóttir hefur doktorspróf í lífefnafræði frá Stokkhólmsháskóla og hefur unnið við rannsóknir og stjórnun. Hún gengdi stöðu framkvæmdastjóra Landverndar en er í dag framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands en það félag var stofnað af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur árið 1907. Þótt jafnréttismálum og hugmyndum hafi fleygt fram síðan þá hrekst báturinn stundum undan vindi og ekki sér til lands um stund og þá er gott að hafa sterk félagssamtök með langar rætur sem vinna að kvenréttindum og jafnri stöðu allra kynja á öllum sviðum mannlífsins. Ákveðið bakslag er komið í alla mannréttindabaráttu í heiminum og mikilvægt að allir haldi vöku sinni.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.