Nýstárleg, fróðleg og skemmtileg

Fyrirfram hefði maður líklega ekki talið að hægt væri að skrifa lifandi og bráðskemmtilega bók um það að gera upp gamalt hús í Þingholtunum og lifa hversdaginn sumar, vetur, vor og haust í Reykjavík. Hjálmar Svainsson hefur hins vegar sýnt fram á að það er svo sannarlega hægt. Húsið er einstaklega vel skrifuð, nýstárleg og athyglisverð.

Hjálmar fléttar saman sögu íbúa hússins sem hann býr í og er að bæta hæð ofan á með konu sinni og því sem á daga hans drífur þegar hann er ferð um borgina á hjólinu sínu eða gangandi. Það kemur fljótt í ljós að örlagaríkur atburður hefur átt sér stað í þessu húsi. Þýskur maður er þar bjó verður fyrir alvarlegri líkamsárás þar og viðbrögð yfirvalda hér marka líf hans upp frá því. Við sögu koma einnig nágrannar Hjálmars og líf þeirra, aðrir íbúar hússins, fólk á ferli í Reykjavík, kaffihús bæjarins, ostborgarar á Vitabar og sundlaugarnar.

Hjálmar hefur einstaka frásagnargáfu og tekst að gæða hversdagslega atburði lífi og lit. Hann hefur lágstemmdan stíl sem minnir stundum á Íslendingasögurnar því hér er ekki verið að blása upp dramatík þótt stundum væri ástæða til. Eftir lesturinn er maður um margt fróðari um gömul hús, byggingarefni, samborgarana í Reykjavík og sögu Baldursgötu 10.

Auglýsing

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.