Vefjur eru fyrirtaks hádegisverður og frábærar í nesti. Þær hafa þann kost að ef kjötið í fyllinguna er eldað fyrirfram tekur enga stund að setja þær saman. Hér á eftir fer uppskrift að Harissa-kjúklingavefjum úr bókinni Létt og loftsteikt í Air Fryer eftir Nathan Anthony. Hér er á ferð nýstárlegur bragðheimur fyrir Íslendinga en einstaklega heillandi og góður. Það er um að gera að prófa sig áfram og harissumauk er eitt af því sem er frábært að eiga í ísskápnum. Það geymist vel, er bragðsterkt en með því að nota minna fyrst þegar menn byrja að nota það má fljótlega komast upp á lag með að nota og njóta þetta frábæra krydd. Þessi uppskrift hefur jafnframt þann kost að vera holl.
Um þennan rétt segir Nathan Anthony:
„Þessar eru meiriháttar og gera hádegisverðinn einstakan. Þær eru innblásnar af gyros-vefjum sem ég fékk einu sinni á götubitahátíð. Það er fljótlegt að útbúa þær og þær henta einnig vel til kvöldverðar, ekki síst ef vinafólk er að koma í heimsókn. Þær líta út eins og þú hafir eytt löngum tíma í eldamennskuna en sannleikurinn er sá að hún tekur ekki nema 15 mínútur.“
HARISSA-KJÚKLINGAVEFJUR
2 msk harissamauk safi úr 1 sítrónu
1 tsk paprikuduft
1 tsk cajunkryddblanda
1 tsk kummin
500 g kjúklingalæri, úrbeinuð og hamflett
salt og pipar eftir smekk 3 pítubrauð eða hveiti
flatbrauð
lófafylli af klettasalati
3 msk granateplafræ
lítil lófafylli af sýrðum rauð lauk (ég kaupi hann í búð – hver má vera að því að súrsa sjálfur?)
Sósa
6 kúfaðar matskeiðar af grískri jógúrt
safi úr 1 sítrónu
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 Blandaðu harissa, sítrónusafa, paprikudufti, cajun kryddblöndu, kummini, pipar og salti saman í skál. Skerðu kjúklinginn í ræmur og veltu honum upp úr blöndunni. Best er að forhita pottinn í 2–3 mínútur og setja kjúklinginn í heita skúffuna, þá brúnast hann betur. Loftsteiktu hann við 200°C í 12 mínútur.
2 Á meðan hann er í ofninum skaltu hræra saman jógúrt, sítrónusafa og hvítlauk.
3 Hitaðu brauðin og skiptu kjúklingafyllingunni jafnt á þau, ásamt klettasalatinu. Dreyptu jógúrtsósunni yfir og settu granateplafræ og sýrðan rauðlauk ofan á.