- 800 g þorskur
- 300 ml kókosmjólk
- 1 tsk karrí
- ½ teningur grænmetiskraftur
- ½ laukur, sneiddur
- ½ grænt epli
- 2 gulrætur, rifnar
- 1 rófa rifin (ekki of stór)
- 5 kartöflur, sneiddar þunnt
- 2 lúkur grænkál, saxað
- 2 hvítlauksgeirar, saxaðir
- 2 bollar rifinn ostur
- salt og pipar
Skerið fiskinn í bita og setjið í eldfast form og saltið og piprið yfir. Setjið kókosrjómann, karrí, lauk og epli saman í pott og látið malla í u.þ,b. 7 mín. Maukið síðan saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél, smakkist til með salti og pipar. Skerið grænmetið og steikið á pönnu. Hellið grænmetinu út í sósuna og blandið saman, hellið yfir fiskinn og dreifið ostinum yfir. Eldið í ca. 18–20 mín í 180°C heitum ofni. Borið fram með hrísgrjónum og naan brauði.